fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Bragginn – Flottur staður í Nauthólsvík

Kynning
Kynningardeild DV
Þriðjudaginn 3. júlí 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég er búinn að skrifa um nokkra veitinga- og gististaði hringinn í kringum landið, marga góða og suma minna góða, en ég hef alltaf jafn gaman af þessu. Nú er það Bragginn í Nauthólsvíkinni sem er spennandi viðbót og væntanlega eini veitingastaður sem er í bragga í dag.

Braggastíllinn á sér nokkuð djúpar rætur og alveg aftur í fyrri heimsstyrjöldina þegar þessi einfalda og ódýra lausn kom fram á sjónarsviðið í hernaði, en það er önnur og lengri saga.

Bragginn „okkar“ er staðsettur á besta stað Nauthólsvíkur og á eflaust eftir að setja stóran svip á allt mannlíf þar enda verulega skemmtileg viðbót við þessa útivistarperlu. Það er frábært framtak Reykjavíkurborgar að hafa varðveitt þennan „síðasta“ bragga flugvallarsvæðisins en hernámssagan öll og braggalíf íslensku þjóðarinnar eftir hernámið er ákaflega merkilegt tímabil. Fyrir þá sem ekki hafa komið inn í bragga þá er hér kjörið tækifæri til að stíga inn í einn slíkan.

Bragginn er flott „konsept“ og hér eru menn sem vita hvað þeir eru að gera. Matseðillinn er mjög fjölbreyttur og þar er hægt að finna spennandi rétti við allra hæfi. Það er sama hvort verið sé að rölta í góða veðrinu með barnahópinn eða bara löngun vakni í eitthvað sætt eða gott. Verðlagning tekur einnig mið af fjárhag háskólanema.

Verðlagningin er jafnframt fjölskylduvæn og eitthvað sem flestir geta ráðið við enda er þetta hugsað sem vingjarnlegur fjölskyldu/útivistarstaður þar sem gaman er að stoppa annaðhvort inni eða í frábærri útiaðstöðu.

Flottur staður, spennandi matseðill og kærkomin viðbót við svæði sem er að verða verulega skemmtilegt. Það er Daði Agnarsson sem er rekstraraðili Braggans, en jafnframt rekstraraðili veitingastaðarins á BSÍ, Mýrin Mathús (áður Fljótt og gott) frá árinu 2011.

Ólafur Sveinn Guðmundsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum