fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Vegamót Bíldudal – Besta „fish & chips“ í heiminum að margra mati

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 20. júlí 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Bíldudal reka hjónin Gísli Ægir Ágústsson og Anna Vilborg Rúnarsdóttir Vegamót, eina veitingastaðinn, búðina, kaffihúsið og barinn í bænum. „Og einu félagsmiðstöðina,“ segir Gísli, sem er fæddur og uppalinn á Bíldudal og þarf ekki að fara langt frá vinnustaðnum til að finna æskuheimilið.

„Æskuheimilið er á Tjarnarbraut 1 og Vegamót eru á Tjarnarbraut 2. Mamma og pabbi búa hinum megin við götuna þannig að þetta er mjög hentugt. Ég er í um 50 metra fjarlægð frá æskuheimilinu. Við hjónin fluttum aftur vestur fyrir sjö árum, eftir að hafa búið í Reykjavík í sjö ár.“

Vegamót hafa verið í rekstri í nokkuð mörg ár, frændi Gísla rak Vegamót í 27 ár, síðan tóku þrjár konur í fjölskyldu Gísla við og ráku staðinn í fimm ár. „Þegar þær ákváðu að hætta rekstri og fara í önnur verkefni buðu þær okkur að kaupa reksturinn, þá sá ég að þarna var tækifæri sem býðst ekki á hverju ári,“ segir Gísli, en þau hjónin hafa rekið staðinn frá 1. september síðastliðnum.

„Ég er mataráhugamaður og hef alltaf verið, ég er líka lífskúnster og hef verið í alls konar samfélagsstörfum,“ segir Gísli. „Ég var einn af þeim sem stofnuðu Skrímslasetrið, hef verið veislustjóri á flestum skemmtunum hér á sunnanverðum Vestfjörðum og syng í hljómsveit.“

Vegamót býður upp á fjölmargar nýjungar

„Vegamót er fallegt sambland af grilli og veitingastað, hér færðu alla flóruna,“ segir Gísli. „Fastur matseðill er í boði alla daga; hamborgarar, „fish & chips“ sem við höfum ítrekað fengið athugasemdir um að sé besta „fish & chips“ í heiminum. Í því er þorskur, sem kemur frá Patreksfirði. Við bjóðum líka upp á lax héðan úr firðinum.

Yfir veturinn er ég með villibráðarkvöld í október, en ég hafði séð um það fjögur ár á undan fyrir fyrri eigendur, jólahlaðborð, kræklingakvöld, kínverskt kvöld. Það eru sem sagt alls kyns matarviðburðir í boði yfir veturinn og stundum lifandi tónlist með, til dæmis trúbador oft um helgar. Þannig að það er alls konar í boði.

Þegar við tókum við hér var Guðmundur Liljendal kokkur á staðnum og hann kenndi mér ýmsa hluti í eldhúsinu, til dæmis sósugerð og fleira. Við gerum allar okkar sósur sjálf, eins og hamborgarasósurnar, þar bjóðum við upp á þrjár sósur: chilimajó, bearnaise og ferskt kryddjurtamauk, við bjóðum ekki upp á þennan hefðbundna vegaborgara, heldur erum með 140 gramma kjöt í borgurunum. Við erum með chilimajó með frönskunum og við gerum umagisósu á „fish & chips“.

Erlendir ferðamenn, auk heimamanna, heimsækja Vegamót á tímabilinu frá maí til október, nóvember, en yfir veturinn eru gestir aðallega heimamenn og þeir sem koma á Bíldudal vegna Arnarlax og Ískalk. „Þá sé ég oft um kvöldmat fyrir starfsmenn og gesti þeirra að kvöldi til,“ segir Gísli. „Ég tek einnig að mér veisluþjónustu út fyrir Bíldudal og sá til dæmis um 250 manna árshátíð í vor á Patreksfirði fyrir fyrirtækin hérna á svæðinu.

Svo til gamans má nefna að í vetur var ég með óveðursopnun. Ég á 30 ára gamla Lödu Sport og setti son minn í að sækja fólk sem treysti sér ekki til að ganga til okkar, og einnig að skutla því heim. Þetta heitir að sníða sér stakk eftir vexti og velvildin skilar sér alltaf til baka.“

Vegamót eru að Tjarnarbraut 2, Bíldudal. Síminn er 456-2232 og netfangið er vegamotbildudal@gmail.com. Vegamót eru á Facebook: Vegamót Bíldudal.
Opnunartími er kl. 10–22 yfir sumarið og styttist svo yfir skammdegið þegar rólegra er.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum