fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Laxárbakki: Heillandi hvíldarstaður við hringveginn

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 15. júlí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laxárbakki er veitingahús og hótel sem staðsett er í Hvalfirði, á bökkum Laxár í Leirársveit við Þjóðveg 1, skammt frá bæði Akranesi og Borgarnesi. Laxárbakki er í afar fallegu umhverfi og í alfaraleið á Vesturlandi og Snæfellsnesi. Stutt er til allra helstu ferðamannastaða á Vestur- og Suðvesturlandi, eins og Húsafells, Langjökuls, Þingvalla, Hvalfjarðar og Snæfellsness.

„Þetta er stutt frá Reykjavík en samt þannig staðsett að fólk þaðan er komið vel út úr sínu umhverfi og nýtur vel kyrrðarinnar og fegurðarinnar hér,“ segir Brynjar Sigurðarson, eigandi Hótel Laxárbakka.

Hótel Laxárbakki er lítið fjölskyldurekið fyrirtæki sem leggur áherslu á góða og persónulega þjónustu og tryggir að bæði matargestum og þeim sem gista á staðnum líði vel. Mikil áhersla er lögð á þjónustu við hópa og er vinsælt að halda alls konar mannamót á Laxárbakka, brúðkaup, stórafmæli, alls konar hvataferðir, árshátíðir og vinnuferðir.

Samhent fjölskylda rekur Laxárbakka.

Fullkominn staður fyrir hópa

Þegar hópar gera sér glaðan dag eða koma í vinnuferð á Laxárbakka er algengt að hluti af hópnum gisti á meðan aðrir láta sér nægja að vera í mat. Núna er rétti tíminn til að bóka veitingar og gistingu fyrir haustferðirnar en æskilegt er að bóka með tveggja til þriggja mánaða fyrirvara.

„Það er miklu betra að bóka tímanlega því þá getur hópurinn fengið allt svæðið út af fyrir sig,“ segir Brynjar Sigurðarson. Á staðnum er 70 manna fundarsalur með skjávarpa og inn af er fundarherbergi fyrir um 20 manns. „Fólk hefur verið að skipta sér upp í vinnuhópa, þar sem einhverjir sitja bara hér í leðursófanum inn við barinn, einhverjir eru í stóra salnum, aðrir í innri salnum – og síðan er kannski einhver utanaðkomandi sem hristir hópinn saman og þá fara allir út á dansgólfið. Það er heppilegt að geta haft alla aðstöðuna út af fyrir sig og fullnýtt hana,“ segir Brynjar.

Margir eru núna að panta vegna vinnuferða og annarra tilefni í september og október en það er líka sjálfsagt að panta fyrir viðburði nær jólum, en aðventuhlaðborðið fer í gang seinni hluta nóvember og stendur fram í miðjan desember. Þá hentar vel fyrir hópana að snæða saman á aðventuhlaðborði eftir fundi og vinnu dagsins.

Brynjar segist kappkosta að hafa veitingar að fullu í samræmi við óskir hvers og eins hóps. „Við höfum sett saman hópaseðla en það er langbest að fólk leggi bara fram sínar óskir og við uppfyllum þær,“ segir Brynjar.

„Fólk pantar síðan gjarnan brúðkaupsveislur með árs fyrirvara og það er nokkuð síðan hingað kom par sem er að skipuleggja brúðkaupið sitt næsta sumar,“ segir Brynjar.

Best er að panta veitingar, fundaraðstöðu og gistingar fyrir hópa í síma 551 2783.

Góður áningarstaður við þjóðveginn

Laxárbakki er líka prýðilegur áningarstaður fyrir þá sem eru á ferð um landið í sumar og gott að stoppa þar og njóta góðs matar.

„Við erum með fremur heimilislegan mat sem mælist vel fyrir og bjóðum til dæmis upp á mjög góðan fisk. Útlendingarnir sækjast mjög eftir hefðbundnum íslenskum réttum, plokkfiski, kjötsúpu og ferskum fiski,“ segir Brynjar.

Sjá nánar á vefsíðunni laxarbakki.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum