fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Fjölskrúðug fjölskylduhátíð: Írskir dagar á Akranesi 5.–8. júlí

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 3. júní 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lopapeysuballið, sandkastalakeppnin og götugrillið eru á meðal hápunkta hátíðarinnar Írskir dagar á Akranesi sem verður glæsilegri með hverju árinu sem líður. Mikið líf er í bænum meðan á hátíðinni stendur, höfðað er sterklega til fjölskyldufólks og brottfluttir Akurnesingar og vandamenn þeirra láta sjá sig í stórum hópum.

„Hátíðin hefst venjulega á fimmtudeginum en í ár er eitthvað af viðburðum að detta inn á dagana þar á undan. Okkar frábæra fiðlusveit Slitnir strengir er til dæmis að undirbúa tónleika sem munu fara fram á miðvikudeginum og ég veit af fleiru sem er verið að undirbúa en ekki alveg komið á hreint, svo það er ekki hægt að greina frá því opinberlega á þessari stundu. Það er þó ljóst að á fimmtudeginum verður árleg grillveisla hjá Húsasmiðjunni, söguganga innblásin af fullveldisafmælinu og fleira áhugavert á dagskrá,“ segir Ella María Gunnardóttir, talsmaður hátíðarinnar.

Hápunktur föstudagsins að mati Ellu er götugrillið sem hefst kl. 18 og er á víð og dreif um bæinn. Fjölmargir bæjarbúar láta þá hendur standa fram úr ermum og halda hátíðargestum grillveislu. Á föstudeginum er jafnframt búið að koma fyrir leiktækjum í bænum. Um kvöldið eru síðan stórtónleikar á hafnarsvæðinu.

Hátíðin nær hámarki á laugardeginum: „Það er þéttpökkuð dagskrá frá morgni og fram á nótt. Um morguninn er opið golfmót, dorgveiðikeppni og hin fræga sandkastalakeppni sem klárlega er einn af hápunktum hátíðarinnar, að minnsta kosti hjá minni fjölskyldu,“ segir Ella María. Fjölbreytt dagskrá er á Akratorgi og ýmislegt í gangi víða í bænum allan daginn.

Stórstjörnur spila á Lopapeysuballinu

Um kvöldið er síðan mikið um dýrðir, að sögn Ellu Maríu:
„Klukkan tíu um kvöldið hefst brekkusöngur við knattspyrnuvöllinn sem hópurinn Club 71 stendur fyrir og eftir brekkusönginn gengur öll strollan síðan niður á Lopapeysuballið sem er nú haldið í 15. skipti.“

Á Lopapeysuballinu koma ávallt fram stærstu nöfnin í íslensku tónlistarlífi á hverjum tíma og nú styttist í að við fáum að vita hvaða snillingar verða á sviðinu í ár.

Lopapeysuballið fer fram bæði inni og úti. „Inni í gamalli sementsskemmu er leikið fyrir dansi á einu sviði, í tjaldi úti er annað svið og síðan er stórt afgirt svæði úti þar sem er veitingasala.“

Á sunnudeginum tekur hátíðin að róast en þá er vinsælt hjá foreldrum að fara með börn sín í Garðalund þar sem boðið verður upp á leiksýninguna Gosa sem Leikhópurinn Lotta flytur. Þar verður funhiti á grillunum þannig að fólk getur smellt á grillin og átt virkilega notalega fjölskyldustund.

Frítt er inn á meirihluta viðburða á hátíðinni en selt er inn á Lopapeysuballið og það kostar í leiktæki. Þá kostar jafnframt inn á tjaldsvæðið en yfir hátíðina er aldurstakmarkið þar 23 ár.

Rauðhærðasti Íslendingurinn

Írskir dagar eru haldnir árlega til að halda hátíðlega upp á írska arfleifð Akraness en Írar námu land á Skaga á fyrstu árum Íslandsbyggðar. Á hátíðinni hefur til dæmis löngum verið boðið upp á írska tónlist og fyrirlestra og verður eitt og annað af írskum uppruna í boði í ár. Þá er jafnframt valinn rauðhærðasti Íslendingurinn og í verðlaun er flug fyrir tvo til Írlands.

Nánari upplýsingar um hátíðina er að finna á Facebook-síðunni Írskir dagar á Akranesi og vefslóðinni akranes.is/is/dagatal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum