Báran er eini veitingastaðurinn á Þórshöfn og einn allra helsti veitingastaðurinn á stórum hluta Norðausturlands. Á sama stað er rekið fyrirtækið Þórshöfn Kayak sem býður upp á kayakleigu og kayakferðir um nágrenni Þórshafnar og Langaness.
Maðurinn á bak við þetta skemmtilega framtak er af erlendu bergi brotinn, Nikola Zdenko Peros heitir hann og er fæddur í New York, hann er bandarískur í móðurættina og króatískur í föðurættina. Nik, eins og hann er oftast kallaður, kom fyrst til Íslands árið 1992 sem skiptinemi í Stykkishólmi og stofnaði þá til tengsla við Íslendinga sem ekki hafa rofnað síðan.
Nik hefur starfað mikið að málefnum skiptinema og komið þeim í kynni við Ísland. Sú viðleitni leiddi til þess að hann festi rætur á Þórshöfn og opnaði veitingastaðinn Báruna.
Báran er staðsett við Eyrarveg 3 á Þórshöfn. Hún er í senn notalegt kaffihús og hinn fullkomni staður fyrir góða máltíð. Mikil áhersla er lögð á að notast við ferskt hráefni úr héraði og er meðal annars boðið uppá lambakjöt, nautakjöt og fisk úr nágrenninu. Ævintýragjarnir matargestir geta prófað hvalkjöt og lunda. Boðið er upp á handgerða hamborgara og pitsur bakaðar í eldofni.
Báran er opnuð kl. 8 á morgnana og þá er tilvalið að kíkja í morgunmat. Það eru líka allir velkomnir í hádegismat, gott er að tylla sér inn á Báruna í eftirmiðdaginn til að fá sér kaffi og kökur, og kvöldverðurinn svíkur engan.
Staðurinn er staðsettur við höfnina og má fylgjast með hafnarlífinu úr matsalnum. Ef veður leyfir er hægt að sitja úti á verönd. Á kvöldin er barinn opinn og oft er lifandi tónlist eða aðrar skemmtilegar uppákomur.
Kayakferðirnar og Kayakleiga eru í boði í allt sumar og alveg út september. Allur nauðsynlegur öryggisbúnaður er útvegaður og blautbúningur er innifalinn í verði ferðarinnar. Siglt er að sveitabænum Sætúni og aftur til baka. Fjölbreytt fugla- og dýralíf Norðausturlands ber fyrir augu í ferðinni og möguleiki er á því að sjá seli.
Upplýsingar og pantanir í þessar ferðir eru á vefsíðunni baran.is og þar eru einnig allar upplýsingar um veitingastaðinn.