Fjögurra skóga hlaupið hefur verið haldið frá árinu 2011 en það fer fram í suðurhluta Fnjóskadals laugardaginn 28. júlí. Hlaupið er fjáröflunarleið fyrir björgunarsveitina Þingey og hefur lukkast afskaplega vel í gegnum tíðina. Þátttakendum hefur farið fjölgandi hægt og rólega og búast má við rúmlega 100 manns í hlaupið að þessu sinni.
Hlaupið er í gegnum fjóra skóga: Vaglaskóg, Lundskóg, Þórðarstaðaskóg og Reykjaskóg. Náttúrufegurð er mikil á svæðinu og ekki spillir fyrir að mikil veðursæld er í Fnjóskadal:
„Við höfum alltaf fengið gott veður, það hefur aldrei rignt á okkur, einu sinni var sólarlaust en oftast hefur verið sól og stundum 20 stiga hiti,“ segir Steinar Karl Friðriksson, formaður björgunarsveitarinnar Þingey. Steinar segir að enginn stórgróði sé af hlaupinu en það komi alltaf út í plús og sé því nokkur styrkur fyrir björgunarsveitina.
„Hlauparar sækja í góða veðrið og náttúrufegurðina hérna og við höfum fengið mjög góðar umsagnir um hlaupið,“ segir Steinar Karl en árið 2014 var Fjögurra skóga hlaupið valið besta utanvegahlaupið.
Mjög fjölbreyttur hópur þátttakenda er í hlaupinu: „Þetta er allt frá krökkum hérna í sveitinni í skemmtiskokkinu og upp í margfalda Íslandsmeistara,“ segir Steinar Karl.
Keppt er í fjórum vegalengdum: 4,3 km skemmtiskokki, 10,3 km, 17,6 km og 30,6 km.
Allir keppendur fá þátttökupening og verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki í hverri vegalengd.
Keppendur eru fluttir á upphafsstaði, drykkir verða á stöðvum, tímatökunúmer, brautarmerkingar og öryggisgæsla eru á leiðinni. Boðið verður upp á hressingu á leiðarenda.
Gæsla verður við hlaupið og munu félagar úr björgunarsveitinni Þingey fylgja keppendum eftir. Þátttakendum skal þó bent á að þeir hlaupa á eigin ábyrgð.
Nánari upplýsingar og skráning á hlaup.is.