fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Gæðingur: Ölbrugghús sem býður upp á spennandi bjór með karakter

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 15. júní 2018 12:00

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við byrjuðum hér í aflögðu útihúsi í Skagafirði árið 2011. Vorum fyrst með tvær tegundir í flösku en síðan fjölgaði tegundum mikið. Við vorum svo sem ekki að finna upp hjólið því tvö önnur kraftbrugghús, Kaldi og Ölvisholt, voru fyrir á markaðnum. Við fórum sömu leið og þeir, við sóttum inn á markaðinn ekki undir þeim formerkjum að við værum að höfða til sem flestra heldur að við værum að bjóða upp á eitthvað öðruvísi – viðbót við markaðinn. Þetta einkennist af dálitlum nördaskap og nýjum stílum,“ segir Árni Halldórsson Hafstað, stofnandi og eigandi brugghússins Gæðings.

Gæðingur er með bruggverksmiðju í Útvík, rétt fyrir utan Sauðárkrók, en síðar í sumar verður opnuð ný verksmiðja í Kópavogi. Mun Gæðingur eftir það starfa á báðum stöðunum en meiri þungi verður í starfseminni í Kópavogi og því ekkert nema léttleikinn fyrir norðan.

En hvað er eiginlega kraftbjór? „Skilgreiningin á kraftbjór er snúin og margbrotin en það er í sjálfu sér ekki eðlismunur á kraftbjór og öðrum bjór. Kraftbjór er hins vegar framleiddur í miklu minna magni, hann er meira handgerður; minna staðlaður (og hann er ekki alltaf eins á bragðið). Hann er yfirleitt bragðmeiri og með ríkari karakter en hefðbundinn bjór. Kraftbjór er fyrir þá sem vilja fá dálitla ögrun. Vel gerður kraftbjór er besti bjór sem þú getur bragðað en að sama skapi er ekkert verra enn illa gerður kraftbjór,“ segir Árni.

Gæðingur selur afurðir sínar bæði á kútum og dósum. Árni segist hafa fundið fyrir því á sínum tíma að erfitt var að komast með kútana að á börum höfuðborgarinnar sem flestir voru skuldbundnir stóru framleiðendunum. Þess vegna opnaði hann MicroBar sem er athvarf fyrir íslenskan kraftbjór og fyrir þá sem hans vilja njóta. MicroBar er núna til húsa að Vesturgötu 2, í kjallaranum undir Restaurant Reykjavík.

Samhliða brugghúsinu á Nýbýlavegi í Kópavogi verður opnaður þar annar MicroBar, sem mun tengjast Gæðingi óslítanlegum taumum. Þá verður nú gott að búa í Kópavogi.

 „Íslenskum kraftbjórframleiðendum hefur fjölgað mjög mikið og við reynum að vera með afurðir frá þeim öllum á MicroBar,“ segir Árni.

 Sjá nánar á vefsíðunni gaedingur-ol.is og Facebook-síðunni Microbar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum