fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Dekura: Einstök þjónusta í umsjón leiguhúsnæðis

Kynning
Berglind Bergmann
Föstudaginn 15. júní 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félagarnir Davíð Karl Wiium og Davíð Vilmundarson eru brautryðjendur í umsjón og umsýslu eigna í skammtímaleigu. Árið 2014 stofnuðu þeir þjónustufyrirtækið Dekura sem sérhæfir sig í umsjón á húsnæði sem leigt er út í gegnum Airbnb og aðra sambærilega vefi. Þá bjóða þeir einnig sérhæfða umsjón gistiheimila af öllum stærðum og gerðum.

Þjónustuframboð Dekura fyrir eigendur húsnæðis í skammtímaleigu spannar vítt svið og leggur fyrirtækið áherslu á að bjóða faglega og heildræna þjónustu til viðskiptavina sinna. Rekstur skammtímaleiguhúsnæðis getur verið ansi tímafrekur og krefst töluverðra fórna og umtalsverðrar skipulagningar af hálfu leigusala. Það er ótal margt sem þarf að huga að þegar kemur að því að gera leigjanda ánægðan. Fyrir utan það að hafa íbúðina í toppstandi, tandurhreina og allt aðgengi með besta móti þegar nýr leigjandi bankar upp á, þá þarf leigusali að vera til taks til að taka á móti leigjendum og vera auk þess reiðubúinn til að leysa úr hinum ýmsu vandamálum sem upp geta komið á öllum tímum sólarhrings. Samhliða fullri vinnu og fjölskyldu getur þetta verið ansi þungur baggi fyrir leigusala að takast á við. Dekura býður upp á heildarþjónustu sem tekur á öllu því sem viðkemur rekstri á eignum í skammtímaleigu, allt frá þrifum upp í alhliða umsjón eignanna. Þá sér Dekura um öll samskipti við gesti auk þess sem allt lín, handklæði og annað sem þarf að vera til staðar fyrir gesti meðan á dvöl stendur er innifalið í heildarþjónustu félagsins.

Með aðstoð Dekura getur leigusali tekið á móti töluvert fleiri viðskiptavinum en ella og fengið betri umsagnir, sem eykur samstundis verðgildi íbúðarinnar og leigutekjurnar sem af henni koma. Hjá fyrirtækinu starfa í dag 12 manns sem sjá um hin ýmsu verkefni og státar Dekura sig af einu færasta þrifnaðarteymi í bransanum. Auk þess starfrækir Dekura fullbúið þvottahús í höfuðstöðvum sínum við Skólavörðustíg. Eftir fjögur ár í þessum rekstri vita starfsmenn Dekura hvað til þarf til að uppfylla gæðakröfur ferðamanna og hvernig hámarka má nýtingu leiguhúsnæðis.

Þar sem nú er orðið heimilt að leigja út eign sína í allt að 90 daga á ári þá færist sífellt í aukanna að fólk nýti sér þá heimild til að fjármagna að hluta til eða fullu sumarfrí sín.
Nú fer að ganga í garð aðal ferðatímabil ársins og því er gott að vera tímanlega í skipulagningu á útleigu húsnæðis fyrir þau sem á það hyggja. Eins og alþjóð veit er íslenska karlalandsliðið á leiðinni á sitt annað stórmót og því lag að leigja út híbýli sín á meðan til þess að létta undir eða jafnvel greiða fyrir fríið.

Dekura er í nánu samstarfi við teymi sérfræðinga í leyfismálum og aðstoðar viðskiptavini sína við að fá þau leyfi sem þarf, viðskiptavininum að kostnaðarlausu, hvort sem um er að ræða 90 daga leyfi eða fullgilt gistileyfi.

Til þess að panta þjónustu frá Dekura má hafa samband í gegnum vefsíðu fyrirtækisins https://dekura.is eða senda póst á netfangið dekura@dekura.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum