Magnús Ásgeir Elíasson er ábúandi að Stóru-Ásgeirsá í Víðidal, skammt frá Hvammstanga. Stóra-Ásgeirsá er að stofni til sauðfjárbú en þar sem lítið er upp úr sauðfjárræktinni að hafa hefur Magnús verið að þróa afþreyingu og gistingu fyrir ferðamenn á staðnum auk þess sem hann stundar hrossarækt. Er hann með fjögur herbergi í gistingu með morgunmat. Heitur pottur er úti rétt uppi við hina fögru Ásgeirsfossa sem gestir kunna afar vel að meta.
Húsdýragarður er á staðnum þar sem gefur að líta öll helstu íslensku húsdýrin, geitur, ketti, hunda, endur og kindur. Geiturnar vekja jafnan mikla kátínu barna sem koma að Stóru-Ásgeirsá, enda afskaplega kátar og mannelskar.
Þessa dagana er Magnús að leggja síðustu hönd á aðstöðu fyrir veitingasölu og hefur hann fengið vínveitingaleyfi. Frá og með miðjum júní verður hægt að fá sér bjór, léttvín og kaffi að Stóru-Ásgeirsá og aðrar léttar veitingar.
Ljóst er að Stóra-Ásgeirsá er spennandi áningarstaður fyrir þá sem verða á ferðinni á norður- eða suðurleiðinni í sumar enda fjölbreytt afþreying í boði á staðnum auk þess sem gestir geta notið mikillar náttúrufegurðar.
Hestaleiga, húsdýragarður og veitingasala er opnuð upp úr hádegi og er opið fram undir kvöld. Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðunni Stóra-Ásgeirsá þar sem einnig er hægt að panta gistingu með skilaboðum. Einnig eru upplýsingar veittar í síma 866-4954.
Þess má geta að Magnús er mikill söngmaður og gaf fyrir nokkrum árum út skemmtilegan geisladisk sem ber heitið Legg af stað. Þar er meðal annars að finna lagið Hófasprett sem finna má á myndbandarásinni Youtube. Hver veit nema Magnús taki lagið fyrir gesti á barnum að Stóru-Ásgeirs á í sumar.