Hvað er meira endurnærandi og skemmtilegra en að skella sér í góðan hóptíma í ræktinni, í tækjasalinn eða sund? Jú, það er að hafa góðan vin sinn með sér í þetta allt saman. Líkamsræktarstöðin Reebok Fitness heldur núna svokallaða Vinaviku þar sem allir viðskiptavinir stöðvarinnar geta boðið vini með sér á æfingu alla daga vikunnar. Þetta er meðal annars frábært tækifæri til að koma vini sínum í snertingu við heilbrigðan lífsstíl.
Vinavikan stendur út næsta sunnudag, 17. júní. Það er eftir meiru að slægjast því möguleiki er á að vinna 100 daga sumarkort. Við gefum Unni Pálmarsdóttur, mannauðs- og markaðsstjóra Reebok Fitness, orðið:
„Það eina sem þarf að gera er að setja mynd á Instagram með myllumerkinu #VinavikaReebok og þú og félaginn þinn gætuð unnið 100 daga sumarkort í Reebok Fitness. Sumartilboð Reebok Fitness hefur slegið í gegn hjá okkur, en það er 100 daga sumarkort á 18.900 krónur. Við framlengjum því tilboðinu til 17. júní. Við hvetjum alla til að mæta og setja heilsuna og markmiðin í fyrsta sætið. Við eigum aðeins einn líkama og verðum að huga vel að líkama og sál til framtíðar. Andrúmsloftið hjá okkur er notalegt, rólegt og fjölskylduvænt. Við leggjum mikið upp úr hreinlæti á öllum okkar líkamsræktarstöðvum sem eru með nýjustu lyftingatækjum og einvala liði einkaþjálfara, kennara og starfsfólks.“
Sérstaða Reebok Fitness er að bjóða upp á líkamsrækt fyrir alla aldurshópa með ólík markmið í huga. Reebok Fitness líkamsræktarstöðvarnar hafa notið mikilla vinsælda, þær eru orðnar sjö talsins og áttunda stöðin verður opnuð þann 1. september, í Lambhaganum við Úlfarsfell. Korthafar Reebok Fitness hafa aðgang að Kópavogslaug, Salalaug í Kópavogi og Ásvallalaug í Hafnarfirði ásamt öllum opnum hóptímum og þjálfun í tækjasal. Markmið Reebok Fitness er að bjóða upp á það besta sem er í boði í líkamsrækt á lágu verði án bindinga.
Nánari upplýsingar um þjónustu Reebok Fitness, einkaþjálfun, hóptíma og skráningu á námskeið eru á heimasíðu Reebok Fitness www.reebokfitness.is og Facebook: https://www.facebook.com/reebokfitness.is/
„Okkar metnaður er að bjóða upp á faglega þjónustu og stuðla að eflingu lýðheilsu landsmanna. Við hlökkum til að taka vel á móti þér,“ segir Unnur að lokum.