fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Ungbarnasund og „old boys“ líkamsrækt

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 8. desember 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungbarnasund er falleg stund

Ungbarnasund er eitt það fallegasta sem foreldri og barn geta upplifað saman á ævinni. Ólafur Ágúst Gíslason ungbarnasundkennari, með meiru, er með dásamleg ungbarnasundnámskeið í boði fyrir nýbakaða foreldra á Reykjalundi. „Ungbarnasund er skemmtileg leið til þess að tengjast ungbörnum sínum og auka öryggi þeirra í vatni. Í mörgum tilfellum hefur ungbarnasundið fyrirbyggjandi áhrif á vatnshræðslu. Enn fremur hjálpar það foreldrum að umgangast börnin á öruggan hátt í vatninu. Þetta er raunar eins og fyrsta líkamsrækt barnsins. Vatnið gefur öðruvísi eftir en andrúmsloftið, veldur meira viðnámi við líkamann sem orsakar meiri áreynslu fyrir barnið og eykur þá styrk barnsins og jafnvægi. Einnig örvar vatnið barnið, eykur einbeitingu og styrkir ónæmiskerfið. Útkoman er í langflestum tilfellum að barnið sefur og borðar betur og líður almennt betur. Ávinningurinn er eiginlega með ólíkindum,“ segir Ólafur.

Óskastund með fjölskyldunni

„Ég hef verið með námskeiðin í hartnær 17 ár og undantekningarlaust myndast skemmtileg stemning. Í flestum tilfellum drífur fólk sig ekki heim eftir námskeiðið heldur staldrar við, fer í pottinn með börnin og spjallar saman. Mjög oft er fólk svo að koma með annað og þriðja barn í námskeiðin því það tókst svo vel með það fyrsta,“ segir Ólafur. Ungbarnasundnámskeiðin eru sannkölluð gæðastund fyrir fjölskyldur þar sem foreldrar og börn njóta samverunnar í rólegu og þægilegu andrúmslofti.

Líkamsrækt B&Ó

Garðbæingar ættu margir hverjir að kannast við Ólaf enda starfaði hann í fjöldamörg ár sem íþróttakennari í Garðaskóla í Garðabæ. Hann er menntaður íþróttakennari og kennir námskeið við Líkamsrækt B&Ó í Ásgarði í Garðabæ. „Við erum með þetta saman, ég og Elín Birna Guðmundsdóttir, sem er íþróttakennari að mennt. Hún er einnig ungbarnasundkennari. Saman erum við með námskeið í Líkamsræktinni fyrir um 120 manns, bæði karla og konur. Birna sér um kvennanámskeiðin, en konurnar eru 60 talsins. Sjálfur er ég með líkamsræktarnámskeið fyrir um 60 karla á mjög breiðu aldursbili. Sá yngsti er fertugur og sá elsti er 82 ára,“ segir Ólafur.

Ungbarnasund Óla Gísla

„Tímarnir samanstanda af fjölbreyttum líkamsæfingum þar sem hver og einn ræður sínum hraða. Tímarnir byggjast upp á upphitun, lóðaæfingum, tvímenningsæfingum eða fjölbreyttri stöðvaþjálfun í 30–35 mínútur þar sem er af ýmsu skemmtilegu að taka. Einnig er spilaður körfubolti. Karlarnir komast yfirleitt í mikið keppnisskap við það og er fátt skemmtilegra en að sjá unglingana brjótast fram hjá þeim. Í lokin er teygt vel á og margir hverjir skella sér í laugina, heita pottinn eða þann kalda eftir á,“ segir Ólafur.

 Ungbarnasund Óla Gísla

Félagsskapurinn skiptir máli

Námskeiðin snúast ekki eingöngu um líkamlega áreynslu heldur finnst Ólafi mikilvægt að virkja félagslega þáttinn. „Það gerir þetta að miklu meira en bara líkamsrækt, 50% líkamsrækt og 50% félagsskapur. Við vorum t.d. með haustfagnað síðasta miðvikudag þar sem kom zumba-kennari sem kenndi stórskemmtileg dansspor. Síðan var farið út í Stjörnuheimili þar sem kokkur kom og eldaði fyrir okkur dýrindis máltíð. Saman áttum við öll stórskemmtilega kvöldstund. Einnig höfum við farið saman í jeppaferðir á haustin, gönguferðir á sumrin, verið með vorfagnaði og haldið helgistund í Maríuhellum í Heiðmörk á aðventunni eftir um klukkustundar gönguferð. Í ár er hún á morgun, 8. desember,“ segir Ólafur.

Ungbarnasund Óla Gísla

Ungbarnasund Óla Gísla fer fram í stórglæsilegri innisundlaug endurhæfingarmiðstöðvarinnar að Reykjalundi. Næsta námskeið byrjar 11. desember og stendur fram til 15. janúar.

Líkamsrækt B&Ó er staðsett íþróttamiðstöðinni Ásgarði í Garðabæ.

Nánari upplýsingar má nálgast á likamsraekt.is (http://likamsraekt.is/)

Sími: 847-2916

Netfang: oligisla@hotmail.com og oligisla@ungbarnasundolagisla.is

Ungbarnasund Óla Gísla

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum