fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Tónskóli Sigursveins: Glæsileg tónleikadagskrá

Kynning
Kynningardeild DV
Laugardaginn 8. desember 2018 16:00

Strengjasveit Tónskólans og strengjanemendur frá Austurríki og Pólllandi undir stjórn Helgu Þórarinsdóttur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í annarlok fyrir jól er mikil uppskeruhátíð í Tónskóla Sigursveins og hundruð nemenda koma fram á fjölbreyttri flóru tónleika, en alls eru haldnir um 25 tónleikar í desember. Mjög öflugt samspil er í Tónskóla Sigursveins, starfandi eru fjórar strengjasveitir, fjórar gítarsveitir, flautukór, fimm rytmasveitir og sex píanóhringekjur, fyrir utan þá kennslu sem fram fer í hóptímum í forskólanum og Suzukihóptímum. Suzukideildin hélt glæsilega fullveldistónleika 1. des. þar sem flutt var íslensk tónleikadagskrá. Á gítarsveitartónleikunum kom í fyrsta skipti fram nýstofnuð gítarsveit áhugamanna fyrir nemendur á framhaldsstigi og kennara.

Samstarf við Hólabrekkuskóla og FB

Starfsstöð Tónskóla Sigursveins í Hraunbergi 2 er beint á móti Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og Hólabrekkuskóla og þar hefur þróast náið samstarf síðustu tvö árin. Allir nemendur í 1., 2. og 7. bekk Hólabrekkuskóla hafa fengið tónlistarkennslu í Tónskóla Sigursveins og í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti hefur verið boðið upp á tvo 5 eininga tónlistaráfanga í rytmískri deild Tónskólans sem gæti orðið vísir að tónlistarbraut.

Píanó Plús

Áhugasömum píanónemendum á framhaldsstigi er boðin þátttaka í námskeiðinu Píanó Plús sem boðið er upp á hálfsmánaðarlega í Tónskóla Sigursveins. Lögð er áhersla á tækni, túlkun og sviðsframkomu og nemendum alls staðar af landinu er boðin þátttaka.

Samstarf við hljómsveitir erlendis

Tónskóli Sigursveins er einnig í samstarfi við hljómsveitir erlendis, – Youth Chamber Orchestra í Fíladelfíu og Jugend Symphonie Orchester Tulln í Austurríki en sú síðarnefnda hélt glæsilega tónleika í nóvember þar sem fram komu einleikarar á píanó úr Tónskóla Sigursveins og Strengjasveit Tónskólans.

Yngsta strengjasveitin í Tónskóla Sigursveins.

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna

Hljómsveitarnámskeið Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna í janúar sem lýkur með tónleikum 23. janúar í Langholtskirkju þar sem flutt verður sinfónía eftir C. Franck, Mozart-aríur og sembalkonsert. Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna er samstarfsverkefni Tónskóla Sigursveins og tónlistarskólanna í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, – og er nemendum á framhaldsstigi á öllu landinu boðin þátttaka.

Concerto grosso – Viking Barokk

Níunda febrúar verða haldnir síðustu tónleikarnir í samnorrænu verkefni sem kallast Concerto grosso – Viking Barokk, og koma þar fram fjórar atvinnumannasveitir í barokktónlist og meira en 100 nemendur frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Íslandi. Sams konar tónleikar voru haldnir í Ósló og Helsinki í nóvember og í janúar verða tónleikar í Stokkhólmi. 45 nemendur úr Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskóla Kópavogs taka þátt í tónleikum erlendis og á Íslandi bætast við um 50 yngri nemendur.

Leikskólaverkefni

Leikskólaverkefnið er árlegt samstarfsverkefni Tónskóla Sigursveins og meira en 30 leikskóla í Reykjavík og árið 2019 verða lög eftir Jóhann G. Jóhannsson á dagskrá. Lögin eru útsett fyrir söng leikskólabarnanna og litla hljóðfærahópa. Hljóðriti og nótum er dreift í leikskólana þar sem leikskólakennararnir kenna og æfa með börnunum í nokkrar vikur. Öll leikskólabörnin heimsækja Tónskóla Sigursveins í um 40 manna hópum, syngja lögin við undirleik nemenda í Tónskólanum. Lokapunktur verkefnisins er opnun Barnamenningarhátíðar í Hörpu þar sem 600 leikskólabörn og um 120 nemendur úr Tónskólanum koma fram.

 

Yngstu nemendurnir á fullveldistónleikum Suzukideildar.

Hægt er að sækja um námsvist í Tónskóla Sigursveins á heimasíðu skólans, tonskolisigursveins.is, og á rafraen.reykjavik.is.

Upplýsingar um tónleika er að finna á Facebook-síðunni Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum