fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Badminton: Ástsæl íþrótt fyrir unga sem aldna

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 8. desember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir Íslendingar, sem hafa einhvern tíma skellt sér í útilegu og spilað badminton á lygnu sumarkvöldi í guðsgrænni náttúrunni, vita hvað það er ánægjulegt að hitta fluguna fullkomlega með tilheyrandi „boing“ hljóði. Hér á Íslandi gefst því miður ekki oft kostur á að spila badminton úti, enda sjaldan nógu lygnt, og ekki að ástæðulausu að flugan nefnist einmitt fluga. En badminton er líklega sú íþrótt sem er hvað auðveldast að komast inn í og ánetjast. „Þetta er skemmtilegt sport sem hentar fólki á öllum getustigum. Svo lengi sem þú getur hitt fluguna með spaðanum þá ertu að spila badminton,“ segir Jóhann Kjartansson, yfirþjálfari hjá TBR.

TBR var stofnað árið 1938 og þann 4. desember síðastliðinn varð félagið 80 ára og haldið var upp á áfangann með heljarinnar afmælisveislu. TBR eða Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur er staðsett að Gnoðarvogi 1. „Við erum með tvö hús í notkun. Annað húsið var byggt 1976 og eru þar fimm vellir. Árið 1987 var félagið algerlega búið að sprengja af sér litla húsið og var byggt nýtt og stærra hús með 12 völlum. Nú erum við með 17 velli fyrir badminton,“ segir Jóhann. Með tilkomu badmintonhalla eins og húsanna í Gnoðarvogi er hægt að stunda þessa skemmtilegu íþrótt allan ársins hring, hvernig sem viðrar.

Námskeið og badmintonmót

TBR er í samstarfi við níu grunnskóla í nágrenni félagsins. „Þá bjóðum við 4. bekk grunnskólakrakka að koma til okkar á námskeið í badminton. Þetta er gert fyrst og fremst til þess að kynna íþróttina fyrir þeim og vekja áhuga. Margir krakkar finna sig ekki í þessum hefðbundnu hópíþróttum eins og fótbolta eða handbolta, en langflestir hafa virkilega gaman að badminton,“ segir Jóhann. TBR býður upp á barna- og unglinganámskeið flesta daga vikunnar auk þess sem í boði eru kvennatímar á þriðjudags- og föstudagsmorgnum. Einnig eru haldin badmintonmót á hverju ári. „Það eru bæði fullorðinsmót og mót fyrir börn og unglinga. Það er öllum þátttakendum frjálst að skrá sig og taka þátt í badmintonmótum en alls engin nauðsyn,“ segir Jóhann.

Skemmtileg íþrótt fyrir unga sem aldna

Margir eiga fastan tíma á velli einu sinni til tvisvar í viku og mæta 2–4 saman og spila í fyrirfram ákveðinn tíma. Einnig er hægt að leigja staka tíma fyrir þá sem stunda sportið ekki reglulega. „Það er gráupplagt fyrir vinahópa að skella sér saman í badminton í klukkutíma eða fjölskyldur að eyða tíma saman og spila þessa skemmtilegu íþrótt,“ segir Jóhann. Badminton er stórskemmtilegt fyrir unga sem aldna. „Við erum með félaga á öllum aldri, allt frá sex ára aldri upp í 89 ára sem koma hingað reglulega og spila,“ segir Jóhann.

„Þetta er töluvert frábrugðin hreyfing en að mæta í ræktina, fara út í göngutúr eða að synda. Hér komast flestir auðveldlega í mikið keppnisskap og það getur aldeilis hitnað í kolunum. Þetta er auðvitað allt í góðu og eru allir góðir vinir enda er jafn mikilvægt að kunna að tapa eins og að kunna að sigra,“ segir Jóhann.

 

Gnoðarvogur 1, 104 Reykjavík

Sími: 581-2266

Netfang: tbr@tbr.is

Opnunartími: Mán.–fim: 8–23, fös: 8–22:10, lau: 9–17.30 og sun: 9–16.50

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum