fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Coerver Iceland: Námskeið sem gerir góðan leikmann betri

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 7. desember 2018 18:00

Heiðar Birnir í miðjunni til hægri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Coerver Iceland sérhæfir sig í knattspyrnuþjálfun og er hluti af Coerver Coaching, sem var stofnað árið 1984 af Alfred Galustian og Chelsea-goðsögninni Charlie Cooke, undir áhrifum hins goðsagnakennda hollenska þjálfara, Wiel Coerver. Þjálfunin byrjaði hér á landi árið 2013 og er Heiðar Birnir Torleifsson framkvæmdastjóri og yfirþjálfari Coerver Iceland. „Við hjá Coerver erum með okkar eigin kennslu- og æfingaáætlun og í dag störfum við í 44 löndum og þjálfunin er í boði allt árið um kring,“ segir Heiðar.

Stofnendur Coerver Coaching, þeir Alfred Galustian og Charlie Cooke, ásamt bandarísku goðsögninni Kristine Lilly, að taka við viðurkenningu frá FIFA á 30 ára afmæli Coerver Coaching.

Iðkendur eru á öllum aldri og frá öllum félögum. „Oftast er aldurinn nemendur í 1.–8. bekk þótt við förum alveg upp í 10. bekk. Svo vinnum við einnig með eldri leikmönnum, það er 2. flokki og leikmönnum í meistaraflokki, en það er meira einkaþjálfun og erum við þá að hjálpa leikmönnum með einhverja ákveðna þætti í þeirra leik.“ Það eru leikmenn á öllum færnistigum sem mæta og kennsluáætlunin verður því að henta öllum, þannig að allir, hvar sem þeir eru staddir með tilliti til færni, geti komið á námskeiðin og náð framförum og notið sín.

Æfingaleikur milli Coerver Norge og Real Madrid í Madrid 2017.

Mikilvægt að börn fái færniþjálfun

Coerver er með eigin kennsluáætlun sem var gefin út árið 1997. Vel var vandað til verks og það er enginn annar með álíka kennsluáætlun. „Fótbolti er bara skoðun og þetta er okkar skoðun,“ segir Heiðar og segir afar mikilvægt að börn fái færniþjálfun, sérstaklega undir 14 ára aldri. „Við trúum því að allir aðrir þættir leiksins byggist á grunnfærninni, það er, ef hún er ekki til staðar þá komi það niður á öðrum þáttum leiksins seinna meir, svo sem taktík, einbeitingu og fleira. Allar æfingar og uppbygging æfinga eru töluvert öðruvísi en krakkarnir eru vanir. Þær eru byggðar upp þannig að allir eru með bolta. Svo eykst erfiðleikastigið og við reynum að gera æfingarnar eins líkar leiknum og mögulegt er. Allt sem þau gera og læra er í beinni tengingu við það sem þau lærðu á undan. Coerver Coaching er fyrir alla og okkar mantra og hugmyndafræði er að allir eiga skilið góða þjálfun.“

Þjálfarar sækja líka námskeið hjá Coerver

Coerver hefur einnig haldið námskeið fyrir þjálfara, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. „Við höfum haldið þjálfaranámskeið fyrir fjölmörg félög, til dæmis Breiðablik, Víking, Akranes, Fram, Selfoss, Vestra, Fjarðabyggð og tvö námskeið fyrir KSÍ. Yfir 300 þjálfarar hafa komið á námskeið hjá okkur. Þeir hafa verið frá meistaraflokki niður í yngstu flokka; allt frá mjög reyndum þjálfurum með allar UEFA þjálfaragráðurnar, til þjálfara sem eru að stíga sín allra fyrstu skref í bransanum,“ segir Heiðar.

Heiðar og Siggi

„Coerver Coaching er fyrir alla og til að mynda eru okkar iðkendur frá byrjendum upp í afreksmenn og allt þar á milli. Við getum sniðið okkar æfingar að þörfum hvers og eins“.

Frá alþjóðlegu knattspyrnubúðunum á Akureyri 2017.

Ávinningur leikmanna:

-Leikmaður eykur leikfærni óháð leikstöðu og getu í knattspyrnu
-Leikmaður lærir færni bestu knattspyrnumanna heims
-Leikmaður eykur hraða með og án bolta
-Leikmaður nýtur fótboltans betur óháð eigin getu

Næstu námskeið Coerver Coaching eru eftirfarandi:
Mosfellsbær 14.–16. desember
Akraneshöllin 21.–23. desember
Fífan í Kópavogi 27.–29. desember

Allar skráningar fara fram á coerver.is/store
Allar frekari upplýsingar um Coerver eru á heimasíðunni: coerver.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum