fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Spennandi bækur frá Óðinsauga: Fjórir höfundar segja frá bókum sínum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 5. desember 2018 13:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tröllasaga – þegar Lóa mannsbarn hittir Rípu tröllastelpu

Bókin um Rípu er fullgerð saga um vináttu tröllastelpunnar Rípu og mannsbarnsins Lóu og ýmsar uppákomur sem verða þegar Rípa fær að kynnast mannheimum. Textinn hentar öllum læsum börnum allt til 12 ára aldurs og þess vegna eldri svo lengi sem þau hafa gaman af ævintýrum. Ég segi gjarnan að ef þau geta lesið Harry Potter þá geta þau lesið Rípu. Síðan breikka myndir Freydísar Kristjánsdóttur lesendahópinn, þar sem yngri börn, allt niður í 3–4 ára njóta þess að skoða þessar stórkostlegu myndir og heyra söguna um leið. Það er von mín að sagan veki áhuga lesandans, skemmti honum og efli kannski málskilning um leið,“ segir Sigríður Ólafsdóttir, höfundur Rípu. Sigríður hefur áður sent frá sér ljóðabókina Bikarinn tæmdur.

 

Mömmugull: Hjartnæm frásögn um það mikilvægasta í lífinu okkar – börnin

„Mér þykir svo vænt um bókina Mömmugull og boðskapinn sem henni fylgir. Hún kennir börnum að þau þurfi ekki að eiga mest og stærst af öllu til þess að vera rík. Raunverulegur fjársjóður lífsins hefur alltaf verið beint fyrir framan nefið á þeim. Í þessum kappsama heimi finnst mér mikilvægt festa þessa vitneskju sem fyrst í sessi. Lesturinn er léttur, skemmtilegur og dásamlegur. Það fullkomnar sögustundina svo að syngja saman lagið Gull og perlur í endann. Það lag læra þau flest í leikskólanum og fjallar það um verðmæti vináttunnar,“ segir Katrín Ósk Jóhannsdóttir, höfundur bókarinnar Mömmugull. Katrín Ósk hefur áður skrifað bækurnar um Karólínu kónguló en þær eru orðnar þrjár talsins.

Föruneyti Signýjar: Persónur úr íslenskum þjóðsögum

Föruneyti Signýjar er skáldsaga eftir Jón Axel Egilsson, byggð á íslenskum ævintýrum og þjóðsögum. Hér eru Sálin hans Jóns míns og Hlini Kóngssonur endurvakin. „Sögupersónan er Signý, ung stúlka, sem telur sig eiga sök á því að tröllskessa hafi rænt Hlina, syni Hrings, höfðingjans í Brekavík. Á sama tíma koma tveir ferðalangar fljúgandi úr framtíðinni í tröllarúmi, en missa alla stjórn á því er tröllskessan stekkur upp í rúmið og flýgur á brott með Hlina. En aftan á rúmgaflinum leynist laumufarþegi sem á eftir að breyta sögunni,“ segir höfundurinn. Föruneyti Signýjar er fyrsta skáldsaga Jóns Axels Egilssonar. Skáldsaga byggð á íslensku ævintýri og þjóðsögu hefur ekki verið skrifuð á Íslandi síðan Eiríkur Laxdal skrifaði Ólandssögu 1777, sem var ekki gefin út fyrr en 200 árum seinna, 1986.

Lavander á ferð –  Fantagóð fantasía, uppfull af kímni

Sögurnar um Lavander Petrillot eru gamansögur og því hálfgerðir hvítir hrafnar í íslenskum nútímabókmenntum, að mati höfundarins Jóns Páls Björnssonar. „Þunglyndislegur drungi er víðsfjarri herra Petrillot, að fylgja honum eftir á að vera spennandi, óvænt og umfram allt skemmtilegt,“ segir Jón Páll.

Aðalsögupersónan er óprúttinn og svikull karl á miðjum aldri sem vílar ekki fyrir sér að ljúga, svindla og stela til þess að komast í gróðann. „En þrátt fyrir það er hann nokkurs konar ævintýrahetja þótt hann hafi tæpast geislandi útlit, hugprýði, hreinleika eða íþróttamannslegt atgervi. Geislandi útlit, hugprýði, hreinleiki og íþróttamannslegur vöxtur eru líka hrikalega ofmetin og nánast gagnslaus ef maður vill græða alvöru peninga,“ bætir höfundurinn við.

Þetta er önnur bókin um Lavander. Fyrri bókin heitir Lavander á leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum