fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Endurnýjað Listasafn á Akureyri vekur hrifningu – Fjölbreyttir viðburðir – Árskort í safnið frábær jólagjöf

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 5. desember 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Frá því að við opnuðum aftur í ágúst hefur gestafjöldinn tvöfaldast frá því sem áður var og gestir eru afskaplega ánægðir með breytingarnar,“ segir Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri. Safnið var opnað að nýju í sumarlok eftir gagngerar breytingar og má segja að upp sé risið nýtt og stærra listasafn.

„Við tókum efstu hæðina í notkun og tengibygginguna á milli Ketilhússins og listasafnsins. Opnuðum kaffihús og sjö nýja sali. Það er mikill kostur að þurfa ekki lengur að loka safninu þegar skipt er um sýningar því það eru alltaf nokkrar aðrar sýningar í gangi. Safnið er því opið alla daga vikunnar. Núna erum við til dæmis með sex sýningar í gangi og fjölbreytnin er mikil, þetta er allt frá klassík upp í það nýjasta. Sem dæmi um hið fyrrnefnda má nefna sýninguna Úrval úr safneigninni og sýninguna Svipir sem kemur frá Listasafni ASÍ, en það eru portrett eftir gömlu meistarana. En auk þess erum við með það allra nýjasta, til dæmis splunkuný verk eftir Magnús Helgason og Hjördísi Frímann,“ segir Hlynur.

Aukin fjölbreytni hefur ekki bara stórfjölgað gestum safnsins heldur segir Hlynur að aldurssamsetning sýningargesta sér orðin mun fjölbreyttari auk þess sem fólk staldri mun lengur við í safninu núna þegar meira er í boði.

www.danielstarrason.com

Sýning sem breytist og þróast á hverjum degi

„Stóra sýningin okkar núna er Örn Ingi Gíslason – Lífið er leik-fimi. Eitt það skemmtilegasta við þessa sýningu er að hún er að breytast og þróast á hverjum degi. Á opnuninni voru bara auðir veggir og fullt af kössum en síðan er Halldóra Arnardóttir sýningarstjóri að taka upp úr kössunum af þessu æviverki Arnar Inga, sem lést í fyrra. Sýningin verður ekki endanleg fyrr en á lokadegi í janúar og eðlilega koma margir oft á hana.“

Fjölbreyttir viðburðir eiga sér stað á sýningunni og þann 1. desember verða listakonurnar Brák Jónsdóttir og Hekla Björt Helgadóttir þar með gjörning sem ber yfirskriftina Fullveldið endurskoðað, taka tvö – Rósaboðið.

Tvær nýjar sýningar eru núna í undirbúningi og verða opnaðar í byrjun febrúar. Þá mun Tumi Magnússon sýna vídeó- og hljóðverk og þær Kristín Gunnlaugsdóttir og Margrét Jónsdóttir verða með sýningu sem áður var sett upp í Nordatlantens Brygge í Danmörku og ber heitið Super Black. Þar verða til sýnis áhrifarík málverk og leirlistarverk.

www.danielstarrason.com

Sýningaropnun 8. desember: Ange Leccia

Hinn þekkti franski listamaður Ange Leccia opnar sýningu í Ketilhúsinu þann 8. september. „Þetta er vídeóverk sem byggt er á verki sem hann sýndi í Listasafni Íslands. Þetta er hins vegar önnur útfærsla en verkið heitir Hafið eða La Mer,“ segir Hlynur.

Gjafakortin frábær jólagjöf

Sem fyrr segir er nýtt og stærra listasafn risið upp eftir endurbætur á Listasafninu á Akureyri. Það eru fleiri og fjölbreyttari sýningar, kaffihús og viðburðir. Listasafnið á Akureyri er því orðinn staður þangað sem sífellt fleiri sækja sér upplifun, skemmtun og andlega næringu. Fyrir þá sem vilja sækja safnið oft og fylgjast með því sem þar er að gerast er mun hagstæðara að kaupa árskort í safnið í stað þess greiða aðgang hverju sinni. Árskortin eru líka frábær jólagjöf og þau má kaupa í afgreiðslu safnsins í Listagilinu á Akureyri.

http://www.listak.is/is/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum