fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Prolan: „Besta ryðvarnar- og smurefni sem ég hef komist í tæri við“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 4. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það var ekki fyrr en ég komst í tæri við undraefnið Prolan frá Nýja-Sjálandi, að ég fann hið fullkomna ryðvarnar- og smurefni. Þetta er undantekningarlaust það besta sem ég hef komist í tæri við,“ segir Smári Hólm Kristófersson, stofnandi og eigandi ryðvarnarverkstæðisins Hjá Smára Hólm, á Rauðhellu 1, Hafnarfirði.

Prolan

Í seinni tíð hefur Smári í auknum mæli sérhæft sig í forvörnum gegn ryði. Við þá þróun hafa starfsmennirnir leitað að nýjum og árangursríkum leiðum til þess að takast á við ryð og hin hvimleiðu vandamál sem hljótast af því. Það var þá sem þeir rákust á Prolan. Efnið er unnið úr lanolín, öðru nafni ullarvaxi sem myndast í fitukirtlum dýra sem hafa ullarfeld. Lanolin er sannkallað undraefni og er m.a. uppistaða í mörgum snyrtivörum, sem og sérhæfðum smur- og varnarefnum fyrir matvælaiðnað og flugvélar.

Prolan

Prolan
Það er ótrúleg breyting á stellinu eftir notkun Prolans

Óhætt að nota í matvælaiðnaði

Prolan hefur varið miklu í vöruþróun sem stuðlar að því að útbúa sérhæfðar lausnir fyrir krefjandi aðstæður. Vörurnar frá Prolan hafa þá verið þrautprófaðar við ýmsar öfgafullar aðstæður og er útkoman sú að það stenst m.a. allar kröfur NSF-vottunar, sem þýðir að fullkomlega óhætt er að nota efnið í matvælaiðnaði. M.a. stenst efnið háþrýstiþvott með allt að 170 bara þrýstingi. Einnig þolir efnið klór og sterk sápuefni auk þess sem skítur og ryk loðir ekki við það. Að auki skemmir Prolan ekki gúmmi (getur haft áhrif á EPDM-gúmmí), þvert á móti ver það gúmmí og smyr. Bændur geta því að skaðlausu úðað efninu yfir heyvinnuvélar, dráttarvélar og önnur tæki á haustin. Þegar vélarnar eru teknar í notkun á vori er óþarfi að þvo efnið af. Því hafa íslenskir bændur sýnt Prolan-efnunum mikinn áhuga, því óhætt er að nota þau sem ryðvörn á dráttarvélar og önnur tæki án þess að valda skaða í umhverfinu eða á framleiðsluvörum bænda.

Prolan

Prolan
Grillið er alveg eins og nýtt!

Ótrúleg virkni

Það hafa margir heyrt um WD 40 enda varla til það heimili sem er ekki með efnið í kústaskápnum til þess að laga hin ýmsu vandamál sem koma upp á heimilinu. „Ég get fullyrt að Prolan gerir allt sem WD 40 gerir, og meira til. Prolan er líka smurefni. Þess vegna hefur Prolan margfalt meiri virkni. Sjálfur hef ég gert tilraunir með virkni Prolan. M.a. er hægt að nota það til að verja keðjur, járn og ál. Ég setti til dæmis upp rekka við Hellisheiðarvirkjun til að prófa hvort Prolan stæðist tæringu af völdum brennisteinsvetnis, en þekkt er að gufa frá virkjuninni tæri allar rafmagnssamstæður í flutningslínum á Hellisheiði. Ég setti þetta líka á bíla frá Tempra og fleiri fyrirtækjum. Auk þess hef ég prófað þetta sem felgubón og fleira. Prolan hefur ótrúlega virkni á allt sem ég hef prófað það á og meira til.

Prolan hefur ótrúleg áhrif á klakasöfnun á bretti og undirvagna á bílum. Jeppakarlarnir sem ösla í klaka og krapa uppi á jöklum og nota Prolan segja mér að það festist aldrei klaki undir bílunum hjá þeim. Það eina sem hefur áhrif á Prolan undir bílunum er barningur af sandi frá hjólbörðum sem virkar þá eins og sandblástur. Það stenst í raun ekkert efni slíkt, en þá þarf bara að úða aftur á þá álagsstaði með Prolan. Þegar menn gera við bíla sem áður hafa verið úðaðir með Prolan-efni eru aldrei vandræði með að boltar og skrúfur hafi ryðgað fastar. Enda smýgur Prolan inn í allar glufur og gengjur og smyr.

Felguhringir á vörubílum sem gjarnir eru á að ryðga fastir hætta að vera til vandræða sé Prolan borið á þá. Því eru vörubílstjórar í Danmörku mikið farnir að nota Prolan. Sama á við bremsurnar, en hægt er að úða Prolan á bremsudælur sem eiga til að ryðga fastar í bílum til að koma í veg fyrir það. Einnig er þjóðráð að bera Prolan á gúmmífattningar (með svampi) í bílhurðum á veturna til þess að koma í veg fyrir að þær frjósi fastar.“

 

Sjá nánar á Facebook-síðunni Prolan ryðvörn og vefsíðunni smariholm.com
Rauðhella 1, Hafnarfirði
Sími: 861-7237

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum