fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Þvottahúsið Fjöður: Þvær fyrir þig

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 3. desember 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þvottahúsið Fjöður ehf. er alhliða þvottahús, efnalaug og hreinsun sem hefur áratuga langa reynslu í þjónustu við fyrirtæki og einstaklinga varðandi allan þvott. „Okkar helstu viðskipti í dag eru við hótel, veisluþjónustur og stofnanir, en slíkir aðilar þurfa að láta þvo umtalsvert magn af þvotti reglulega, svo sem dúka, sængurföt og fleira. Að sjálfsögðu þjónustum við einnig einstaklinga með þvott og hreinsun á líni og fatnaði. Að auki bjóðum við upp á leigu á líni og dúkum fyrir einstaklinga og fyrirtæki,“ segir Baldur.

 

Nýjar sérhæfðar græjur

„Við stofnuðum þvottahúsið Fjöður árið 2007 og byrjuðum á að sjá um þvott fyrir þrjú hótel. Þá voru þrír starfsmenn. Í dag hefur Fjöður heldur betur vaxið fiskur um hrygg og eru starfsmenn orðnir tólf talsins. Okkar þvottur fer í gegnum nýjustu græjurnar. Við erum með góðar stórar þvottavélar og hágæða strauvélar sem skila þvottinum af sér brakandi sléttum og glansandi fínum. Okkar metnaður liggur í því að skila verkinu frá okkur hratt, örugglega og með fyrsta flokks frágangi,“ segir Baldur.

Hagkvæmur kostur fyrir hótel og Airbnb-gestgjafa

Undanfarin ár hefur meira borið á túrisma í kringum hátíðarnar og ferðamenn flykkjast að til þess að upplifa íslensk áramót. Ferðamennirnir gista á hótelum og í Airbnb-íbúðum og hefur þessi aukning í túrisma yfir vetrarmánuðina að sjálfsögðu bein áhrif á starfsemi þvottahúsanna. „Hjá Fjöður erum með hagkvæman kost fyrir hótel og Airbnb-gestgjafa sem léttir þeim vinnuna töluvert við gestaskipti. Við bjóðum upp á línleigu auk þess að vera með alhliða umsjón á þvotti. Við erum einnig með þjónustu þar sem við sækjum og skilum sé þess óskað. Öll þjónusta er sniðin að þörfum viðskiptavinarins varðandi afhendingu og frágang, allt lín straujað og brotið saman og kemur tilbúið beint á rúmið,“ segir Baldur. Sé um regluleg viðskipti að ræða gerir Fjöður föst verðtilboð.

 

Nánari upplýsingar má nálgast á fjodur.is, https://www.fjodur.is/ og á Facebook-síðunni Þvottahúsið Fjöður.

Fyrirtækið er staðsett að Ármúla 44, 108 Reykjavík.

Sími: 553-7979

Farsími: 846-4611

Netpóstur: fjodur@fjodur.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum