Byggingafyrirtækið Svalir sér um að hanna svalir fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki. Allar teikningar sem þarf til byggingarsamþykktar eru útvegaðar, meðal annars skráningartöflur og eigendaskiptasamningar.
Fyrirtækið er í eigu Benedikts Sveinssonar byggingastjóra en þungamiðjan í starfsemi hans er breytingar á húsnæði og viðgerðir vegna lekamála, ekki síst í tilvikum þar sem staðlar og reglugerðir hafa ekki verið uppfylltar við framkvæmd.
Benedikt er sérfræðingur í stálsmíði og með áratuga reynslu á því sviði. Benedikt er jafnframt með byggingastjóraréttindi og Svalir útvega byggingastjóratryggingar þar sem við á.
Hvort sem verkefnið er stórt eða lítið, smíði á stálburðarvirki, húsasmíði, svalir, stigar eða handrið er markmiðið Svala ávallt að skila af sér óaðfinnanlegri vinnu og gæðum.
Gamla klassíska útlitið snýr aftur í nýrri gerð af svölum
Svalir kynna nú nýja tegund af íbúðasvölum. Viðtekið er með upphengdar svalir að stök halda þeim uppi að innanverðu en nú verður breyting á:
„Við erum að hætta með þessa tegund og kynnum nú útfærslu þar sem knegti eða konsúla er undir svölunum við vegginn þannig að yfirborðið er hreint ásýndar, líkt og svalirnar væru ásteyptar við húsið. Þetta er sama yfirbragð og einkennir svalir á gömlu og virðulegu húsnæði í miðbænum. Ég rissaði upp þessa hugmynd og sendi síðan á arkitektinn minn, Harald Ingvarsson hjá Plús Arkitektum, og hann er að teikna þetta inn í þrívídd núna,“ segir Benedikt en framleiðsla er á næsta leiti.
Sjá nánar um starfsemina á vefsíðunni svalir.is