fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Sendibílastöðin ehf. fagnar 70 afmæli á næsta ári: „Trúin flytur fjöll en við flytjum allt annað“

Kynning

Sendibílastöðin hf.

Kynningardeild DV
Föstudaginn 28. desember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sendibílastöðin hf. var stofnuð 29. júní árið 1949. Hún var upphaflega staðsett að Ingólfsstræti 11 en flutti svo í Borgartún 21 árið 1956. Í dag er stöðin að Klettagörðum 1 og hefur verið síðan 1999. Sólveig Þóra Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf., segir að á staðnum sé einkarekið mötuneyti fyrir bílstjórana og einnig er í boði kaffi og meðlæti allan daginn. „Andrúmsloftið er gott og menn hittast hér og rabba, spila bridds og tefla þegar tími gefst til. Það er reyndar ekki oft því yfirleitt er mikið að gera.“

Allt annar rekstrargrundvöllur í dag

„Rekstur sendibílastöðva er með allt annan grundvöll í dag en áður var. Árið 2002 komu ný lög/reglugerðir varðandi það að ekki var lengur skylda fyrir sendibílstjóra að vera á viðurkenndri sendibílastöð – eins og alltaf hafði verið. Auk þess var sendibílastöðvum bannað að gefa út hámarksgjaldskrá. Við fengum undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu. Því hámarksgjaldskrá er til verndar viðskiptavininum,“ segir hún.

Bílar hafa stækkað í gegnum tíðina og hafa þeir meiri burðargetu enda kallar markaðurinn á það. Ný tæki hafa komið til sögunnar sem létta bílstjóranum vinnuna, t.d. rafmagnsbrettatjakkar og rafmagnströpputrillur.

Að sögn Sólveigar flytur Sendibílastöðin allt frá umslögum upp í stórflutninga.

„Við erum með bíla allt frá fimm rúmmetrum upp í tæplega 50 rúmmetra, burðargetu allt að 17 tonnum. Sumir eru með vagna aukalega sem eru um 50 rúmmetrar þar sem burður er allt að 13 tonnum. Einnig höfum við aðgang að krana og búslóðalyftum sem ná allt að 50 metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“

Þjóna bæði fyrirtækjum og einstaklingum

„Trúin flytur fjöll við flytjum allt annað,“ segir Sólveig brosandi. „Þjónusta okkar er víðtæk. Við þjónum bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Á Sendibílastöðinni starfa tveir starfsmenn en á stöðinni eru alls 70 bílstjórar.

Sendibílstjórarnir eru allir sjálfstæðir verktakar með sameiginlega símaþjónustu varðandi úthlutun túra og innheimtu reikninga þeirra fyrirtækja sem eru í reikningi á Sendibílastöðinni.“

Ísbjarnarflutningur

Aðspurð segir Sólveig að það skrýtnasta sem fyrirtækið hefur flutt til þessa sé líklega ísbjörn. „Hann var uppstoppaður, sem betur fer,“ segir hún hlæjandi.

„Annars er ekkert sem við neitum að flytja svo framarlega sem farmurinn kemst í bílana og allt sé löglegt. Við höfum hingað til ekki lent í því að þurfa að neita viðskiptavini um flutning.“

Sendibílastöðin hf. Klettagörðum 1, 104 Reykjavík.
Símar: 553-5050 og 533-1000.

www.sendibilastodin.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum