Jólin komu snemma í ár hjá okkur hjá MAX1 Bílavaktinni þegar við fórum og afhentum Krabbameinsfélagi Íslands styrk uppá 1.500.000 kr.
Það eru Nokian gæðadekk og MAX1 sem hafa verið í samstarfi með Bleiku slaufunni undanfarin ár og mikil ánægja hefur verið með samstarfið bæði hjá viðskiptavinum og starfsmönnum MAX1 enda allir ánægðir að fá tækifæri til þess að vekja athygli á svo mikilvægu málefni.
Nokian gæðadekk og Bleika slaufan
Það er sönn ánægja að geta tengt gæða vörumerkið Nokian við svo brýnt málefni. Höfuðstöðvar Nokian eru himinlifandi með samstarfið og hafa fjallað um það á sínum miðlum. MAX1 býður upp á mikið úrval gæðadekkja frá Nokian á frábæru verði og í öllum tilfellum þá ráðleggjum fólki að velja gæðadekk því öryggi bílsins veltur mikið á gæðum dekkjanna“ segir Sigurjón Árni. „Við veitum fólki ráðgjöf um hvernig dekk séu best undir bílinn og hvetjum okkar viðskiptavini til að fara á heimasíðuna okkar, www.max1.is og kynna sér verð og úrval.
Þú getur treyst Nokian gæðadekkjum „Þú getur treyst Nokian gæðadekkjunum. Nokian dekk hafa ávallt komið gífurlega vel út í könnunum og eiga sigurvegara í öllum flokkum. Það er mikilvægt að geta treyst eiginleikum dekkja í krefjandi aðstæðum. Nokian-dekk eru prófuð á 700 hektara fullkomnu prófunarsvæði Nokian í Finnlandi. Á svæðinu eru um 50 mismunandi brautir þar sem þeir prófa og sannreyna Nokiandekk á mismunandi undirlagi í afar erfiðum og krefjandi vetraraðstæðum. Framleiðandi Nokian er leiðandi í visthæfni og notkun vistvænna efna við framleiðslu Nokian gæðadekkja,“ segir Sigurjón.