fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Bækur fyrir hugrakka og fróðleiksfúsa krakka

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 17. desember 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rósakot er lítil en metnaðarfull bókaútgáfa sem gefur aðeins út barnabækur. Markmiðið er að glæða áhuga á lestri og auka lesskilning með því að bjóða upp á áhugaverðar og spennandi bækur sem fræða, þroska og skemmta ungum bókaormum.

20% afsláttur

Rósakot er í jólastuði og langar að gefa lesendum DV 20% afslátt af öllum bókum í vefverslun rosakot.is frá 14.–18. desember með kóðanum JOL18

 

Í jólabókaflóðinu að þessu sinni má nefna bækurnar:

 

Sígildar myndasögur – Drakúla

Innbundin bók í nýjum flokki sem nefnist Sígildar myndasögur. Sú fyrsta í röðinni er Drakúla byggð á sögu Bram Stoker.

Rósakot

Hátt í fjöllum Transylvaníu býr hinn ískyggilegi Drakúla greifi. Þegar Jonathan heimsækir kastalann kemst hann á snoðir um hvaða mann greifinn hefur raunverulega að geyma. Getur vampírubaninn, prófessor Van Helsing, komið Jonathan og félögum hans til hjálpar og hindrað að Drakúla greifa takist ætlunarverk sitt áður en það er um seinan?

Ógnþrungin spenna frá fyrstu til síðustu blaðsíðu. Vönduð myndasögubók með frábærum teikningum fyrir krakka sem þora, 9 ára og eldri! Bókin er kærkomin viðbót fyrir unga lesendur sem vilja bitastæðar, sígildar sögur.

4.300 kr.

104 bls.

 

Stjáni og stríðnispúkarnir – Myrkraverur

Innbundin bók í nýjum flokki sem nefnist Stjáni og stríðnispúkarnir. Bókin Myrkraverur er sú fyrsta í röðinni.

Rósakot

Stjáni reynir að halda sér vakandi til þess að verjast skrímslunum sem búa í myrkrinu. En hvað er eiginlega á seyði? Hann heyrir mjóróma, skræka rödd og sér pínulítil fjólublá fótspor á bókahillunni sinni. Þorir Stjáni að horfast í augu við sannleikann?

Bækurnar um Stjána eru spennandi valkostur fyrir krakka sem eru að ná góðum tökum á lestri. Skemmtilegt ævintýri sem allir hafa gaman af.

2.450 kr.

79 bls.


Litum og leikum með Binnu – Litum og leikum með Jónsa

Nú geta aðdáendur Binnu og Jónsa loks dundað sér við að leysa þrautir, lita og teikna með söguhetjunum vinsælu.  

Rósakot

Í þessum bókum eru myndir til að lita en einnig er hægt að æfa sig í teikningu og leysa þrautir s.s. orðarugl. Svo má ekki gleyma öllum límmiðunum sem fylgja með.

Þessar bækur eru kærkomnar fyrir alla krakka sem lesa bækurnar um Binnu B Bjarna og Jónsa.

1.550 kr.

20 bls.

 

Kíkjum heim til dýranna

Einföld og falleg flipabók í nýjum flokki sem er bæði skemmtileg og fræðandi.

Rósakot

Hér skoðum við með yngstu börnunum hvar og hvernig ýmiss konar dýr búa – í holum, húsum, trjám og líka í sjónum.

Þessi bók hentar vel fyrir forvitna krakka, tveggja ára og eldri.

2.590 kr.

14 bls.

Bækurnar frá Rósakoti eru seldar í öllum helstu bókaverslunum en einnig í vefverslun – verslun.rosakot.is. Rósakot sendir frítt um land allt.

Rósakot

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum