Skúli Craft Bar er á Fógetatorginu við Aðalstræti 9. Skúli er sjálfstæður bar sem sérhæfir sig í handverksbjór í hæsta gæðaflokki. Jólagjöf bjóráhugafólksins er gjafabréf á Skúla Craftbar en gjafabréfin er hægt að nálgast á staðnum eða panta þau í gegnum Facebook-síðuna Skúli Craft Bar. Að sjálfsögðu gildir gjafabréfið fyrir hvað sem er á staðnum en meðal annars eru í boði girnilegir ostabakkar fyrir alls konar drykki og fleiri veitingar.
Upphæð gjafabréfsins er að eigin vali en frá þeirri upphæð sem þú velur dragast 15% – það er sérstakur jólaafsláttur.
Huggulegt föstudagskvöld
Það verður mikið um dýrðir á Skúla í kvöld, föstudagskvöldið 14. desember. Bjartur frá Grillmarkaðnum mætir á svæðið og býður upp á belgískar vöfflur með bjórkaramellum, jólarjóma og krydduðum berjum. Lifandi tónlist verður á staðnum er Benjamín Náttmörður kemur og leikur jóladjass fyrir gesti. Tilvalið að koma við eftir jólainnkaupinn og hressa sig við og njóta.
Svo má geta þess að „happy hour“ er í gildi alla daga fram að jólum, allan daginn.
Sjá nánar á Facebook-síðunni Skúli Craft Bar.