fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Félag lesblindra: Merkileg starfsemi – Spennandi jólahappdrætti

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 14. desember 2018 14:00

Tökum vel á móti sölufólki jólahappdrættisins

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Félagið var stofnað 26. mars árið 2003 þannig að við verðum 16 ára í mars á næsta ári. Þetta er grasrótarfélag sem stofnað var eftir að annað félag var lagt af sem hét Dyslexíu-félag Íslands og stofnað 1994. Skortur á fjármagni hamlaði starfseminni svo hún fjaraði út. Ég kom að stofnun félagsins 2003 og þá var uppi nokkur ágreiningur um heiti félagsins. Sjálfur vildi ég þá að félagið héti áfram Dyslexíu-félagið en í dag er ég mjög sáttur við nafnið Félag lesblindra því lesblinda er afar gegnsætt orð sem fólk skilur undir eins,“ segir Snævar Ívarsson, framkvæmdastjóri Félags lesblindra, sem er til húsa að Ármúla 7b.

Á stofnfundinum var einnig ákveðið að gerast aðili að Öryrkjabandalagi Íslands. Sú aðild hefur haldið lífi í félaginu og tryggt því nokkurn tekjustofn. Ákveðin tímamót urðu í starfseminni árið 2008 er Snævar ákvað að helga því alla starfskrafta sína.

Starf í grunnskólum

Eitt af mörgum verkefnum hans er að veita þjónustu til félagsmanna í formi uppsetningar á forritum og öppum fyrir tölvur, síma og á námskeiðum og einnig að standa fyrir skólaheimsóknum.

„Meðal annars heimsækjum við unglingadeildir grunnskóla þar sem við fræðum öll börnin um lesblindu. Það stuðlar að því að börn með lesblindu fá aukinn skilning hjá jafnöldrum sínum sem ekki eru lesblindir,“ segir Snævar.

„Við komum að lesblindu á allan mögulegan hátt. Við gætum hlutleysis og veljum ekki eina aðferð sem á að gilda fyrir allan fjöldann heldur kynnum við hlutlaust þær aðferðir gegn vandanum sem eru til, útskýrum hvernig þær ganga fyrir sig, hvers megi vænta og svo framvegis. Sem félag erum við að benda á lausnir sem við teljum að virki fyrir fjöldann í gegnum tæki eins og tölvur og síma. Við höfum árum saman verið með námskeið fyrir fullorðið fólk með lesblindu í gegnum endurmenntunarstöðvar víða um land. Einnig leiðbeinum við kennurum um hvernig gott sé að nýta sér ýmsa námstækni og tæki. Svo höfum við hitt lesblinda nemendur sem eru að undirbúa sig fyrir framhaldsskóla. Auk þess höfum við haldið erindi í ýmsum framhaldsskólum. Nýlega fórum við einnig að kynna starfsemi félagsins á vinnustöðum og höfum gefið út bækling um hvernig lesblinda birtist á vinnustöðum,“ segir Snævar um víðtæka starfsemi félagsins.

Einstaklingsbundin þjónusta

Félagið veitir lesblindum einstaklingsbundna þjónustu: „Félagsmenn geta komið með tækin sín til okkar og fengið uppsetningu á lestrarbúnaði í tækjunum. Allt sem þú getur valið með músarbendlinum er hægt að hlusta á. Android-símar eru síðan þannig að hægt er að tala við tækið og það skrifar fyrir þig, hægt er að taka mynd af blaðsíðunni og hlusta á hana, en það gildir ekki fyrir iPhone-síma. Við erum með önnur tæki, litla handhæga skanna, sem hægt er að draga inn í nokkrar blaðsíður og tengja við tölvu og smartpennann sem tekur upp hljóð meðan maður glósar.“

Enn fremur beitir félagið sér fyrir því að námsbækur séu annaðhvort til á stafrænu formi eða sem hljóðbækur.
Snævar kveðst telja að almennt séu skólar í dag betur vakandi fyrir mögulegum tilfellum lesblindu en áður enda hafi ákvæði um slíkt verið bundin í lög. „Hins vegar tökum við ekki að okkur greiningar en bendum á sérfræðinga sem annast þær – við erum einfaldlega reiðubúin til aðstoðar við þá sem þurfa hjálp með textann sinn,“ segir Snævar.

Jólahappdrætti

Það kostar ekkert að vera félagi í Félagi lesblindra en öllum félögum yfir 23 ára eru sendir valkvæðir greiðsluseðlar, 2.500 krónur á ári, til að auðvelda fólki að styðja félagið. „Við miðum við þennan aldur vegna þess að þá eru flestir orðnir virkir á vinnumarkaðnum,“ segir Snævar.

Að sjálfsögðu er félagið alltaf opið fyrir stuðningi þeirra sem vilja styðja við starfsemi þess og til dæmis er núna í gangi jólahappdrætti félagsins sem getur orðið því drjúg tekjulind. Nánari upplýsingar um það má fá á síðunni lesblindir.is en auk þess er þar að finna mikinn fróðleik um lesblindu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum