„Þetta er vestfirsk skata sem ég kæsi og verka sjálfur. Við erum eingöngu með stóra og flotta gráskötu og erum með um 9 tonn af fullverkaðri skötu. Svo er líka til nóg af saltfiski, hann verður að vera með,“ segir Þórður Tómasson hjá Sætoppi.
Sætoppur var stofnaður árið 1995 en fyrirtækið hefur lengi verið öflugt í útflutningi á ferskum sjávarafurðum. Núna er fyrirtækið að koma á fullu inn á innanlandsmarkað og er af þeim ástæðum að innrétta nýtt húsnæði við höfuðstöðvar fyrirtækisins að Lónsbraut 6 Hafnarfirði.
Eins og allir vita gegnir skatan stóru hlutverki á Þorláksmessu og fjölmargir fara í skötuveislu þann dag. Það er því eins gott að Sætoppur býður upp á alla þessa skötu því framboð hefur ekki verið mikið af henni undanfarið. Segir Þórður að skötu hafi vantað í allt sumar.
Til að panta skötu eða saltfisk í skötuveisluna er best að senda pöntun á netfangið sala@saetoppur.is eða hringja í síma 624 4022.