fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Reykjavík Röst: Það ilmar allt af jólakanil

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 11. desember 2018 08:00

Sigurgestur Jóhann í þann mund að bera fram dásamlega vegan súpu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veturinn er heldur betur mættur á Reykjavík Röst við Gömlu höfnina með heita kanilkaffidrykki, ekta heimagert heitt súkkulaði með gommu af rjóma og heitar súpur og samlokur sem bragð er af. „Það er ótrúlega hátíðleg stemning núna á kaffihúsinu með útsýni yfir forkunnarfagra báta skreytta jólaljósum, bjartan snjókrapa og dúðaða ferðamenn,“ segir Sigurgestur Jóhann Rúnarsson, rekstrarstjóri kaffihússins.

Reykjavík Röst

Sjarmerandi kaffihús

Reykjavík Röst er sjarmerandi kaffihús við Gömlu höfnina í Reykjavík. „Matseðillinn er einfaldur og við reynum eftir fremsta megni að halda verðinu í lágmarki á bæði mat og drykk án þess að tapa gæðum. Á morgnana bjóðum við upp á úrval af bakkelsi, sætabrauði, croissant-samlokur og morgunverðarbakka. Í hádeginu og fram eftir degi bjóðum við upp á ljúffengar heimagerðar samlokur og súpu. Súpan er alltaf vegan og skiptum við reglulega um tegund.“

Reykjavík Röst

Hátíðleg hamingjustund

Reykjavík Röst er með úrvalsbjóra frá Borg Brugghúsi og gott úrval af léttvíni. Happy Hour er daglega frá kl. 15–19 á bjór, léttvíni og snafs dagsins. Á gleðistundinni er kjörið að grípa í ýmsa afþreyingu á staðnum eins og Jenga eða taka stutta skák.

Reykjavík Röst

Dýrindis kanilkaffi

„Kaffið okkar er ítalskt gæðakaffi frá Lavazza og bjóðum við að sjálfsögðu upp á alla þessa hefðbundnu kaffidrykki. Við erum einnig með æðislegan jólacappuccino með kanilsírópi og þeyttum rjóma og hefur hann verið að renna vel ofan í gesti,“ segir Sigurgestur.

Reykjavík Röst

Nánari upplýsingar má nálgast á reykjavikrost.is og Facebook-síðu staðarins.

Reykjavík Röst er við Gömlu höfnina í Reykjavík að Geirsgötu 5

Sími 552-7777

Netfang: info@reykjavikrost.is.

Opið er frá kl. 8.30–23 alla daga.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum