fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Vestfirskt atvinnuleikhús á hjólum

Kynning
Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 1. desember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum, stofnað árið 1997. Leikhúsið hefur sett á svið yfir 40 leikverk sem eiga það flest sameiginlegt að tengjast sögu Vestfjarða á einn eða annan hátt.

„Leikhúsið starfaði fyrstu þrjú árin í borginni en flutti búferlum vestur um síðustu aldamót, þá kom einfaldlega í ljós að við vorum fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum,“ segir Elfar Logi Hannesson, forystumaður og leikari Kómedíuleikhússins, en hann er, að eigin sögn, jafnframt eini atvinnuleikarinn sem búsettur er á Vestfjörðum. „Þegar við settum upp okkar fyrstu leiksýningu vestra kom náttúrlega ekkert annað til greina en að setja upp einleik.“

Á þriðja tug útgáfuverka

Fyrsti einleikur Kómedíuleikhússins var Leikur án orða, 2001, eftir Samuel Beckett en eftir það hafa allir einleikirnir komið úr smiðju leikhússins. Þess er gaman að geta að Kómedíuleikhúsið hefur starfað talsvert í útgáfu og gefið út yfir á þriðja tug verka.

„Í ár gefum við út tvær bækur sem báðar tengjast Vestfjörðum sterkum böndum. Fyrst skal nefna verkið Geisli Bíldudal. Um miðja síðustu öld kom út á Bíldudalsblaðið Geisli. Ritstjóri var séra Jón Kr. Ísfeld, sóknarprestur á Bíldudal. Blaðið var safnaðarblað en gerði þó meira en að miðla kristilegu efni því í hverju tölublaði voru fréttir úr heimahögum auk margs konar fróðleiks um Bíldudal og Arnarfjörð í fortíð og samtíð. Hér gefur að líta úrval úr Geisla þann tíma sem blaðið var gefið út á Bíldudal 1946–1960. Öllu kristilegu efni er þó sleppt þótt allt sé það gott og sérlega blessað. Geisli segir sögu Bíldudals eins og hún hefur aldrei verið sögð áður,“ segir Elfar.

„Hin bókin sem við gefum út í ár er Allir dagar eiga kvöld, ljóðaúrval Stefáns frá Hvítadal. Hér er á ferð sérlega vönduð útgáfa með úrvali úr ranni þessa áhrifamikla skálds er kenndi sig við Hvítadal. Hann var vormaður í orðsins fyllstu merkingu bæði í verkum sínum og ljóðlistinni sjálfri. Skáldið er fólksins æð, kvað hann í einu ljóða sinna. Ósjaldan hitti hann á æð sinna lesenda í ljóðum sínum sem eru mörg hver með því dásamlegasta og áhrifaríkasta í ljóðlistasögu þjóðarinnar. Ljóð hans hafa þó eigi verið aðgengileg í svo veglegri útgáfu í meira en hálfa öld.“

Leikhús landsbyggðarinnar

Bækur Kómedíuleikhússins fást í bókaverslunum um land allt sem og á heimasíðunni komedia.is. Leikhúsið hefur gefið út á þriðja tug bóka. Margar bækur tengjast vitanlega Vestfjörðum á einn eða annan hátt, nú eða þá leikhúsinu. „Við höfum gefið út þó nokkrar leikhúsbækur m.a. kennslubókina Leikræn tjáning og Einleikjasaga Íslands,“ segir Elfar Logi en báðar bækurnar eru eftir hann.

„Við erum, jú, leikhús landsbyggðarinnar,“ bætir Elfar við. „En segja má að árið 2005 hafi orðið straumhvörf í Kómedíuleikhúsinu. Þá frumsýndum við leikritið Gísli Súrsson sem er langmest sýnda leikrit Vestfjarða og þótt víðar væri talið og leitað. Hefur það verið sýnt yfir 320 sinnum bæði hér heima og erlendis. Það hefur tvort tveggja verið sýnt á íslensku og ensku og í dag sýnum við langoftast á ensku fyrir erlenda ferðamenn sem sækja okkur heim. Hvert leikhús þarf sína mjólkurkú og það má sannlega segja að hjá okkur sé það Gísli Súrsson.“

Kómedíuleikhúsið er leikhús á hjólum og ferðast um land allt með sýningar sínar. Nýjasta sýning leikhússins er Valhöll en þar fylgjumst við með æðsta og elsta goðinum, Óðni, en hann er einnig goð skáldskapar, dauðra, hernaðar, töfra og galdra og rúna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum