fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Listasafn Íslands við Tjörnina: Upplifun á aðventu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 1. desember 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn miði – Þrjú söfn!

Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7 við Tjörnina

Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70

Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og leggur megináherslu á 19. og 20. aldar list, íslenska og erlenda. Það á merkasta safn íslenskra verka hér á landi og eftir alla helstu myndlistarmenn þjóðarinnar. Það hefur einnig að geyma vaxandi safn erlendra verka eftir heimsfræga listamenn, svo sem Pablo Picasso, Edvard Munch, Karel Appel, Hans Hartung, Victor Vasarely, Richard Serra og Richard Tuttle.

Listasafn Íslands heldur að staðaldri fjölbreyttar sýningar sem endurspegla listaverkaeign þess. Auk þess efnir það árlega til víðtækra sérsýninga á verkum íslenskra sem erlendra listamanna. Í tengslum við þær eru gefin út ítarleg og vönduð rit.

Listasafn Íslands

Listasafn Íslands við Tjörnina

Í dag eru fjórar mjög ólíkar sýningar í safninu. Fullveldissýningin Lífsblómið fjallar um fullveldi Íslands í 100 ár. Að sýningunni standa Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Þjóðskjalasafn Íslands og Listasafn Íslands. Handrit, skjöl og myndlistarverk frá þessum stofnunum mynda kjarnann í sýningunni. Auk þess hafa önnur söfn og stofnanir, sem og einkaaðilar, bæði hér á landi og í Danmörku, lánað verk á sýninguna. Myndlistin ljær umræðunni um ýmis átakamál á fullveldistímanum rödd og ýmsar sögulegar heimildir veita okkur aðgang að hugsun og lífi genginna kynslóða. Í hjarta sýningarinnar er að finna handrit og mikilvæg skjöl er varða íslenska menningu og snerta sjálfsmynd þjóðarinnar, sjálfstæðisbaráttuna og fullveldi þjóðarinnar.

 

Fjársjóður þjóðar

Í fórum Listasafns Íslands eru á tólfta þúsund verka af ýmsum gerðum, frá ýmsum löndum og ýmsum tímum. Á sýningunni Fjársjóður þjóðar er dágott úrval verka úr þessari safneign, sem gefur yfirlit yfir þróun myndlistar á Íslandi frá öndverðri nítjándu öld til okkar daga. Með um það bil áttatíu listaverkum er dregin fram fjölbreytni þeirra miðla og stílbrigða sem einkenna þessa stuttu en viðburðaríku sögu. Fyrstu áratugina byggðist safneign Listasafns Íslands einvörðungu upp á gjöfum, málverkum eftir höfðinglega erlenda listamenn, einkum danska og norræna, en upp úr þar síðustu aldamótum urðu listaverk eftir Íslendinga æ meira áberandi. Núna er aðeins um tíundi hluti listaverkaeignar safnsins erlendur þó svo að enn séu ögn fleiri erlendir en íslenskir listamenn höfundar verka í Listasafni Íslands.

 

Véfréttir

Úrval verka Karls Einarssonar Dunganons sem er ætlað að varpa ljósi á líf og list þessa einstaka listamanns sem hafði alla tíð sterkar taugar til Íslands og arfleiddi íslensku þjóðina að verkum sínum. Varðveitir Listasafn Íslands rúmlega tvö hundruð myndverk, en ljóð hans, úrklippubækur og önnur gögn eru geymd í Þjóðskjalasafni Íslands.

 

Bókfell í Vasulka-stofu

Í febrúar 2014 dvaldi Steina um mánaðar skeið á Íslandi og vann að hugmynd um rafrænt verk í samvinnu við Listasafn Íslands og Árnastofnun. Hún fékk aðgang að handritunum í Árnastofnun og þannig birtist ný hlið á höfundarverki hennar þar sem fornsögunum er búin nýstárleg umgjörð í formi rafræns listaverks. Í verkið valdi Steina ýmis handrit sem hún skeytti saman með hugvitsamlegum hætti þannig að þau líða áfram og vindast, snúast, umhverfast og bólgna út líkt og bóluþang í straumröst. Í fyrsta sinn verður ritlistin og blekteikningin Steinu að viðfangsefni þegar blóðrauðir höfuðstafir og ægifagrar myndir renna fyrir augum áhorfandans í hægfljótandi sístreymi.

Listasafn Íslands

Safn Ásgríms Jónssonar

Sýningin Korriró og dillidó veitir allri fjölskyldunni kærkomið tækifæri til að kynnast þeim einstaka ævintýraheimi skrautbúinna álfa og ógnvekjandi trölla sem Ásgrímur Jónsson túlkaði af mikilli einlægni og ástríðu. Áhersla er lögð á að virkja ímyndunarafl gesta og gefa þeim kost á að njóta þessa menningararfs sem um margt getur varpað ljósi á ótta, drauma og þrár genginna kynslóða og sambúð þeirra við ógnvekjandi náttúru landsins.

Krakkaklúbburinn Krummi

Vönduð og skemmtileg dagskrá fyrir fjölskyldur í hverjum mánuði. Þann 8. desember kl. 14 verður jólakortasmiðja á safni Steingríms Jónssonar við Bergstaðastræti 74.

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Tengingar

Sigurjón Ólafsson og nokkrir samferðamenn hans.
Í tilefni þess að þann 21. október 2018 voru liðin 30 ár frá því að Listasafn Sigurjóns Ólafssonar var opnað almenningi, er efnt til sýningar þar sem fjórtán myndlistarmenn, sem allir tengdust Sigurjóni og list hans með einum eða öðrum hætti, eiga samtal við verk Sigurjóns í fyrrum vinnustofu hans.

Listamennirnir eru Erlingur Jónsson, Gerður Helgadóttir, Gestur Þorgrímsson, Guðmundur Benediktsson, Guðmundur Elíasson, Hallsteinn Sigurðsson, Helgi Gíslason, Jón Benediktsson, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Svava Björnsdóttir, Sverrir Haraldsson, Tove Ólafsson og Örn Þorsteinsson.

 

Hinir ýmsu viðburðir

Listasafn Íslands er með fjölda viðburða tengda list og almennri menningu sem hægt er að sjá á Facebook-síðu safnsins. Meðal þeirra eru Gæðastundir sem er dagskrá eldri borgara, Krakkaklúbburinn Krummi, Freyjujazz, Flautukórinn, fjölbreytt skólastarf, leiðsögn af ýmsum toga og fleira.

Safnbúð Listasafn Íslands við Tjörnina. Við munum standa fyrir jólamarkaði frá og með 4. desember. Bækur, kort og plaköt á ótrúlegu verði til jóla.

 

Nánari upplýsingar er að finna á listasafn.is

Listasafn Íslands við Tjörnina

Opið daglega frá kl. 10 til 17 (lokað mánudaga)

Safn Ásgríms Jónssonar

Opið daglega frá kl. 13 til 17 (lokað mánudaga)

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar

Opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13 til 17

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum