fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Hárfín samskipti í tíu ár: Modus þakkar viðskiptavinum sínum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 5. nóvember 2018 15:00

Hermann Óli Ólafsson með móður sinni, Jóhönnu Bjarnadóttur. Ljósmyndari Ásta Kristjánsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hárgreiðslustofan Modus heldur upp á 10 ára afmæli í vikunni og mun fagna með því að fara í heljarinnar auglýsingarherferð sem er alls ekki nein venjuleg auglýsingaherferð heldur meira eins og þakkarherferð. „Ég hafði samband við ellefu kúnna sem hafa verið hjá mér í áraraðir eða síðustu 10 til 18 ár, bæði fjölskyldumeðlimi sem hafa verið hjá mér frá því ég byrjaði að klippa, en einnig konur sem hafa verið hjá mér mislengi, og sumar í allt að 10 ár og bauð þeim að koma í ljósmyndatöku með mér,“ segir Hermann Óli, eigandi Modus.

Hermann Óli með Bryndísi Ásmunds. Ljósmyndari: Ásta Kristjansdóttir

Sögur og samskipti

„Herferðin fjallar í grunninn um hversu mikils við metum samband okkar við kúnnann og hversu heilandi þetta samband getur verið. Þessar konur koma til mín oft á ári og í hvert sinn verður sambandið sterkara. Við deilum sögum og þess vegna má segja að hárgreiðslustofan okkar samanstandi af fólki og sögum þess,“ segir Hermann. Hann bætir líka við að hárið sé stundum eins og fylgihlutur númer eitt, og það sé jafnframt sá hluti manneskjunnar sem sýnir kannski best hvernig manni líður. „Ef maður er með heilbrigt hár og hirðir vel um það þá er það góð vísbending um að manni líði vel, og öfugt,“ segir Hermann.

Hermann Óli með Evu Gunnarsdóttur. Ljósmyndari: Ásta Kristjansdóttir

Þakkarherferð

Herferðin er þannig uppbyggð að hún er eins og samtal. Annars vegar eru ljósmyndir af kúnnanum með fallegum orðum til Hermanns, og hins vegar er ljósmynd af kúnnanum með Hermanni sem birtist með fallegum orðum frá Hermanni til viðskiptavinarins. Ljósmyndirnar voru teknar af hinni hæfileikaríku Ástu Kristjansdóttur. Svo birtast þessar ljósmyndir hægt og rólega á vefmiðlum okkar. „Með þessari herferð viljum við þakka kúnnum okkar fyrir að vera með okkur síðustu tíu árin og vonumst auðvitað til þess að þeir haldi áfram að koma til okkar, leyfa okkur að draga fram fegurðina í þeim og eiga falleg samskipti við þá,“ segir Hermann.

Modus hár- og snyrtistofa – Smáralind
Hárvörur.is – Smaralind
Opið: Mán, Þri, Mið, Fös – 09.00–19.00
Fim – 09.00–21.00
Lau – 11.00–18.00
Sun – 13.00–18.00

Modus hárstofa – Glerártorg Akureyri
Hárvörur.is – Glerártorg Akureyri
Opið: Mán–Fös – 09.00–18.30
Lau – 10.00–17.00
Sun – 13.00–17.00

s: 527-2829
Vefpóstur: harvorur@harvorur.is
www.harvorur.is
Facebook: Modus hár og snyrtistofa
Instagram: harvorur.is
Snapchat: harvorur.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum