fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Sígræn jólatré með led-ljósum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 27. nóvember 2018 12:00

Stórsniðug lausn: Led Jólatré

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Skátarnir byrjuðu að selja Sígræna jólatréð – gervijólatré – fyrir 25 árum. Þessi tré endast gríðarlega vel, svo vel að þau eru að erfast á milli ættliða. Þetta er innflutt vara, hágæða tré sem hafa reynst mjög vel. Allur ágóði af jólatréssölunni fer beint í æskulýðsstarf skátanna,“ segir Kristinn  Ólafsson, framkvæmdastjóri Skátabúðarinnar.

Ekkert barr, ekkert vesen

Sígrænu gervijólatrén frá Skátunum eru klárlega mjög góður kostur í þeim tilvikum þegar lifandi jólatré henta ekki. Kristinn telur að notkun gervitrjáa fari vaxandi. „Margir verða sífellt þreyttari á öllu barrinu, þrifunum og veseninu sem fylgir lifandi trjám og sumir hafa ofnæmi fyrir gróðrinum,“ segir Kristinn en telur þó að lifandi jólatré hafi sannarlega mikla kosti og mikinn þokka til að bera. Sígræna jólatréð sé hins vegar góður valkostur til hliðar við þau: „Það er gott að eiga tréð alltaf niðri í geymslu og þurfa ekki að huga að jólatréskaupum fyrir hver jól. Svo er líka gott að geta byrjað að skreyta fyrr fyrir jólin, margir eru farnir að skreyta um miðjan desember og jafnvel fyrr.“

Skátarnir Sígræn Gervijólatré

Sígræna jólatréð frá Skátunum endist gríðarlega vel og er selt með tíu ára ábyrgð. Hægt er að skipta um einstaka greinar á því, eða eins og Kristinn segir sposkur: „Já, það er hægt að fá varahluti.“

 

Led-tré – lausn á öllum vanda heimsins

Mesti hausverkurinn við jólatrésuppsetningu er líklegast ljósaserían. Við kaup þarf að huga að dreifingu á ljósum og hversu margra ljósa serían þarf að vera. Hvað þá þegar kemur að því að taka hana niður að jólahátíð lokinni. Þá þarf að finna nógu stóran sívalning til þess að vefja henni utan um svo hún flækist ekki. Það þarf enginn að örvænta því Skátarnir eru byrjaðir að flytja inn stórsniðug sígræn jólatré með áföstum led-ljósum. „Það þarf ekki lengur að vesenast með flæktar ljósaseríur með biluðum perum sem þarf að skipta út og kemur svo í ljós að fást hvergi. Led-tréð er þakið litlum hvítum led-ljósum sem veita fallega mjúka birtu. Þeim er fullkomlega dreift svo það eina sem þarf að hugsa um er að setja jólaskrautið á. Það er auk þess miklu betri ending á led-ljósunum en venjulegum perum,“ segir Kristinn.

Gæðatré á góðu verði

Þó að Sígræna jólatréð sé innflutt er það framleitt í samræmi við fyrirmæli frá Skátabúðinni og hannað með þeim hætti að það líkist sem mest normannsþini, sem Íslendingar þekkja vel. Efnið sem notað er í tréð er þykkara en á flestum öðrum trjám og það er jafnframt ekki eins eldfimt og önnur gervitré. Í trénu er þykkara plast en gengur og gerist með gervitré, sem veldur því að greinarnar leggjast síður niður við geymslu milli jóla, og tréð virkar eðlilegra þegar komið er við það.

Óbreytt verð í þrjú ár

Verð hefur ekki breyst í þrjú ár og kostar Sígræna jólatréð frá 5.900 krónum. Mikill fjöldi stærða er í boði og er verðið breytilegt eftir stærðum. Minnstu trén eru 60 sentimetrar á hæð og þau stærstu heilir fimm metrar. Stærstu trén prýða anddyri í húsnæði ýmissa stórfyrirtækja.

Skátarnir Sígræn Gervijólatré

Sígræna jólatréð er til sölu í Skátabúðinni, Hraunbæ 123.

Opið er alla virka daga í nóvember frá 9–17.

Opnunartími frá 1. desember 9–18 alla virka daga, og frá 12–18 um helgar.

Sími: 550-9800

Jafnframt er hægt að kaupa trén í vefversluninni sigraena.is. Trén eru heimsend hvert á land sem er.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum