Golfklúbburinn Holtagörðum, Holtavegi 10, er í senn heilsárs félagsmiðstöð fyrir golfara og virkilega notalegur veitingastaður sem býður upp á frábæran mat á hagstæðu verði. Á staðnum eru fimm golfhermar af bestu gerð en staðurinn er jafnframt framúrskarandi sportbar þar sem gott er að fylgjast með enska boltanum og alls konar öðrum íþróttaviðburðum á fjölda sjónvarpa og eru stærri viðburðir sýndir á risaskjáum.
Í hverjum golfhermi geta verið allt að átta kylfingar að leika í einu og það fer vel um allt að 12 manns við hvern hermi. Gestir geta hvort tveggja notast við eigin kylfur eða fengið leigðar kylfur á staðnum. Einnig er í boði að geyma kylfurnar sínar á staðnum.
Golfhermarnir henta fólki með alls konar kunnáttu og byrjendur eru svo sannarlega vel komnir í Golfklúbbinn og fá kennslu. Almennt má fullyrða að hvergi sé betra að æfa sveifluna en í golfhermum.
Ekki bara fyrir kylfinga
Þeir sem hafa ekki áhuga á golfi geta líka átt góðar stundir í Golfklúbbnum. Eins og fyrr segir eru íþróttaviðburðir sýndir á fjölda skjáa og matseðilinn hentar öllum og er til dæmis kjörið fyrir fjölskylduna að eiga góða stund á staðnum yfir máltíð.
Golfklúbburinn hentar líka vel fyrir hvers konar hópefli og tekur á móti hópum frá 10 upp í yfir 100 manns. Hægt er að leigja sér sal fyrir hvers konar viðburði. Best er að hafa samband í síma 820-9111 og fá upplýsingar og tilboð fyrir hópinn eða viðburðinn þinn.
Á matseðlinum eru fjölbreyttir hamborgararéttir, salöt, steikur, kjúklingaspjót, fiskréttir og margt fleira. Verðinu er stillt í hóf en gæðum jafnframt haldið uppi.
Vert er að minna á að hægt er að kaupa gjafabréf að Golfklúbbnum á staðnum fyrir upphæð að eigin vali. Þetta er til dæmis góð jólagjöf sem myndi gleðja margan kylfinginn.
Golfklúbburinn er opinn alla daga vikunnar frá kl. 10.00 til 23.00. Sjá nánar á vefsíðunni golfklubburinn.is og Facebook-síðunni Golfklúbburinn.
Ert þú að fara að djamma?
Ert þú að fara að djamma? Það er upplagt að hefja kvöldið á skemmtilegri sveiflu í Golfklúbbnum, í boði eru sérstök djammtilboð í golf og veitingar á föstudags- og laugardagseftirmiðdögum.
Grunnpakki er ein klukkustund í golfhermi og 8 drykkir á 10.000 kr. Gildir föstudaga og laugardaga frá 17.00. Hver aukaklukkustund kostar 7.000 (golf í 1 klst. og 4 drykkir).
Verðstríð – Komdu og prófaðu
STRÍÐSTILBOÐ frá 1.290 kr.!
Golfklúbburinn er í stríði! Nánar tiltekið í verðstríði við frægan, sænskan húsgagnasala í Garðabænum. Stríð vinna sig ekki sjálf. Við þurfum þína hjálp. Golfklúbburinn útvegar vopnin, þú munn og maga.
Vopnabúrið er:
Best er að sannreyna fullyrðingarnar hér að framan með því að koma og prófa!
Saman vinnum við þetta stríð!
Ath. Gildir á meðan birgðir endast, takmarkað magn í hverju hádegi.