Upprunalegt Thai-nudd er aldagömul heilunaraðferð sem kemur úr dýpstu rótum búddískrar menningar í Asíu. Það er framkvæmt með fjölbreyttum aðferðum svo sem jógastöðum og þrýstitækni. Thai Nuddstofan býður upp á guðdómlegar nuddmeðferðir sem lætur stressið, kvíðann og vöðvabólguna líða úr líkamanum á undraverðan hátt. Ekki skemmir fyrir hvað stofan er notalega og fallega innréttuð. „Ég býð alla velkomna inn í Zen-draumaheim sem veitir slökun á huga, líkama og sál,“ segir Joomjan Konkhan nuddmeistari.
Thai-nuddmeðferðir: Alhliða árangur
Thai-nudd er stórkostleg og heildræn meðferð þar sem ýmsum aðferðum er beitt: Þrýstimeðferð, svæðanuddi á iljar, orkubrautavinnu, teygjum og jóga. Til að beita þessum aðferðum notum við lófa, þumla, framhandleggi, hné og fætur. Árangur er aukið orkuflæði, það losar um spennu, eykur lífsþrótt og skapar fullkomið jafnvægi á milli líkama og huga. Alhliða Thai-nudd tekur 60 eða 90 mínútur.
Bak-, herða- og höfuðnudd: Dásamleg líðan
Dásamlega endurnærandi meðferð sem er sérstaklega hönnuð til að losa um spennu og létta á höfuðverk. Þessi 30 mínútna meðferð gefur slökun, endurnærir og skapar frið og æðruleysi til að takast á við hvað sem framundan er.
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Thai Nuddstofan.
Thai Nuddstofan er staðsett á annarri hæð, Háaleitisbraut 58–60, 108 Reykjavík
Sími: 892-3899
Opið er frá 09–20 alla daga.