fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Það er alltaf gott að koma í Kærleikssetrið

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 16. nóvember 2018 16:00

Frá skyggnilýsingafundi í Kærleikssetrinu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kærleikurinn ræður ríkjum að Þverholti 5 í Mosfellsbæ, en þar er Kærleikssetrið til húsa. Starfsemina stofnaði Friðbjörg Óskarsdóttir árið 2005 og býður hún þar upp á fjöldann allan af meðferðum, námskeiðum, hugleiðslustundum og hópvinnu til þess að heila líkama og sál. „Í Kærleikssetrinu fjöllum við um allt sem lýtur að þroska manneskjunnar, jafnt andlegum, sálrænum og líkamlegum þroska, því það er ekki til sú manneskja sem er bara líkamleg. Öll erum við í senn líkamleg, andleg og sálræn og við þurfum að virkja alla þessa þætti,“ segir Friðbjörg.

 

Málverk af Yöntru. Við erum stundum með málverkasýningar.

Aðventan, tími gleði og notalegra stunda

„Ég vil minna fólk á aðventunni á að spenna ekki bogann of hátt heldur að leyfa sér að njóta. Aðventan er yndislegur tími og hans á að njóta. En það eiga ekki allir jafn gott á aðventunni. Sumir upplifa missi sem veldur miklum sársauka. Þá er mikilvægt að loka sig ekki af, heldur þarf að leita í umhverfi á meðal fólks þar sem manni líður vel. Við Íslendingar erum gjarnir á að kyngja tilfinningunum og dylja þær innra með okkur. Ég tala um magasvæðið okkar sem ruslafötu því þar geymum við óunnar tilfinningar. Maður verður að viðurkenna tilfinningarnar, bæði góðar og slæmar, og vinna með þær. Og margir gera sér ekki grein fyrir að þeir þurfi stuðning í vanlíðaninni. Það er engin skömm í að líða illa. Við verðum að geta losað. Þá getur verið gott að koma í Kærleikssetrið,“ segir Friðbjörg.

Frá skyggnilýsingarfundi í Kærleikssetrinu.

Ýmislegt í boði fyrir alla

Kærleikssetrið er með opnar hugleiðslustundir, námskeið, fyrirlestra, skyggnilýsingar, heilun og opið hús svo aðeins eitthvað sé nefnt. „Við erum með barnahópa og að mínu mati mætti kenna einstaklingum slökun og sálarrækt mun fyrr. Helst í grunnskóla. Þetta starf hefur gefist mjög vel og eru börnin og ekki síður foreldrarnir afar ánægðir með árangurinn,“ segir Friðbjörg. Kærleikssetrið býður upp á einkatíma í heilun og ráðgjöf, nuddtíma, markþjálfun, reiki, miðlun, tarotspá og íkonamyndir með leiðsögn. Svo er vinahópum boðið upp á notalega kvöldstund með ýmsum skemmtilegum uppákomum.

Hjörtur Magni og Friðbjörg á „Heilunarmessu“ í Fríkirkjunni.

Kjarninn

Eftir áramótin gefst tækifæri til að skrá sig í hópa Kjarnans. „Grunnur kennslunnar hjá Kærleikssetrinu er einmitt kjarnavinna, sem er sjálfsvinna. Aðaláhersla er lögð á að tengjast kjarnanum til að styrkja sjálfsmyndina. Einnig er farið í tengingu við æðra sjálfið. Við lærum að tengjast hæfileikum okkar og innri þekkingu sem við höfum öðlast í gegnum líf okkar, bæði núverandi og fyrri líf. Við munum auka næmnina og eflum hæfileikann í að hlusta á innsæið, sem er í raun það eina í lífinu sem er fullkomlega treystandi,“ segir Friðbjörg.

 

Gjafabréf frá Kærleikssetrinu: Gjafir frá hjartanu

„Mér þykir rosalega mikilvægt að velja gjafir frá hjartanu en forðast það að velja gjafir vegna peninga. Gjafir sem koma beint frá hjartanum hafa miklu meira innihald en þær gjafir sem koma út frá peningahugsun.“ Gjafabréfin hjá Kærleikssetrinu eru alltaf vinsælar jólagjafir. „Fólki líður svo vel þegar það kemur hingað og það vill að ástvinum sínum líði jafn vel. Gjafabréfin eru fullkomnar gjafir handa þeim sem vilja gera vel við ástvini sína.“ Í Kærleikssetrinu er einnig rekið lítið gallerý þar sem meðal annars eru til sölu hugleiðsludiskar, reykelsi, myndlist og skart.

Salurinn í Kærleikssetrinu.

 

Dagskrá framundan

Skyggnilýsing 22. Nóvember kl. 20.
„Nærandi morgunstund“ Laugardagur 1. desember 2018 kl. 10–12.
Síðan eru opnar hugleiðslustundirnar öll miðvikudagskvöld kl. 19.30 og eru allir velkomnir í þessar yndislegu stundir. Til að finna kyrrð og innri frið. „Þetta er góður undirbúningur fyrir jólahelgina,“ segir Friðbjörg.

Nánari upplýsingar má nálgast með

Kærleikssetrið er að Þverholti 5, Mosfellsbæ. Sími 567-5088 og 862-0884

netfang: kaerleikssetur@kaerleikssetur.is

Heimasíða: kaerleikssetrid.is og Facebook: Kaerleikssetrid.Mosfellsbae.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum