fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Mi Iceland: Borgaðu minna fyrir meira

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 11. nóvember 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mi Iceland er viðurkenndur endursölu- og dreifingaraðili á Íslandi fyrir kínverska snjalltækjaframleiðandann Xiaomi, betur þekktan sem Mi, sem hefur skapað sér sterkan sess í tækniheiminum á stuttum tíma með áreiðanlegum tækjum á góðu verði. Fyrsti síminn frá Mi kom á markaðinn árið 2011 og aðeins þremur árum síðar var framleiðandinn orðinn sá þriðji stærsti í heiminum.

Mi framleiðir miklar gæðavörur en þar sem merkið er ekki jafnþekkt og til dæmis Samsung eða Apple þá eru þessar vörur yfirleitt mun ódýrari en þekktari merki í sama gæðaflokki, allt að þrefalt ódýrari.

Mi Iceland er vefverslun á síðunni mii.is og er úrvalið afar mikið. Sífellt eru að koma fram nýjar og spennandi vörur. Hér eru nokkur nýleg dæmi:

Mi Band 3

Það hefur verið mikil eftirvænting síðastliðið vegna nýja snjall- og heilsuúrsins frá Xiaomi, Mi Band 3. Biðin hefur svo sannarlega verið þess virði þar sem allt hefur verið betrumbætt frá forvera þess, Mi Band 2. Helstu eiginleikar úrsins eru enn stærri skjár þar sem hægt er að skoða heil SMS-skilaboð, stærri rafhlaða, vatnshelt að 50 metra dýpi svo ekkert mál að taka það með sér í sund og veðurupplýsingar næstu daga svo eitthvað sé nefnt. Það sem gerir þetta snjallúr ólíkt mörgum öðrum er möguleikinn á að skipta um ól á úrinu og gjörbreyta á sama tíma útliti þess.

 Mi 8

Árið 2012 setti Xiaomi á markað sinn annan síma, Mi 2, sem varð strax það vinsæll að Xiaomi varð 2. stærsti farsímaframleiðandi í heiminum það ár. Nú, sex árum seinna, hefur tæknin þróast gífurlega og Xiaomi sannar það svo sannarlega með Mi 8. Síminn hefur tvöfalda 12MP myndavél að aftan og 20MP myndavél að framan með ​AI-assisted face unlock​ sem gerir þér kleift að aflæsa símanum með því einfaldlega að horfa á hann. Nýi Snapdragon 845 örgjörvinn og 6GB vinnsluminni gerir símann að sannkölluðum vinnuhesti.

 

 

 

 

 

Mi A2

Í fyrra kom á markað fyrsti síminn sem unninn var í samstarfi við Google, Mi A1. Síminn fékk strax frábærar viðtökur og hefur salan farið langt fram úr væntingum úti um allan heim. Í ár kom Mi A2 og hefur flest, ef ekki allt, verið betrumbætt frá forvera hans, Mi A1. Samstarf Xiaomi og Google liggur fyrst og fremst í hreinu Android-stýrikerfi sem hefur marga kosti í för með sér en sá mikilvægasti er að síminn sjálfur er hraðari fyrir vikið og uppfærslur á stýrikerfinu skila sér mun fyrr. Mikil áhersla hefur verið lögð á að bæta myndgæðin við dimm skilyrði og myndgæðin almennt. Myndavélin að aftan er tvöföld 12MP + 20MP og 20MP að framan.

 iHealth hitamælir

Hvað er það fyrsta sem þú hugsar um þegar kemur að haustinu? – Rigning, kvef og hiti. Það eiga allir gamlan hitamæli heima en af hverju hafa hitamælar lítið sem ekkert þróast síðustu ár? iHealth -hitamælirinn er svo sannarlega rétt þróun á hitamælum og ætti að vera staðalbúnaður á öllum heimilum. Það sem einkennir þennan hitamæli er ekki bara fallegt útlit heldur er hann einnig snertilaus. Þetta þýðir að þú þarft einungis að beina hitamælinum að manneskju úr 3 sentimetra fjarlægð og hitamælirinn skilar þér niðurstöðum á innan við 1 sekúndu. Þar sem hann er snertilaus þarftu ekki að hafa jafn miklar áhyggjur af því að þrífa hann eftir hverja einustu mælingu eins og með aðra hitamæla.

Flestir símarnir frá Mi Iceland  ásamt fleiri vörum (Mi Band 3, Mi Scale 2, Mi Bluetooth speaker, ferðahleðslur og aukahlutir) eru komin í sölu hjá símafyrirtækinu Hringdu ásamt því að vera til sölu í vefverslun Mi Iceland á mii.is.

Mi Iceland sendir hvert á land sem er og er enginn sendingarkostnaður. Sjá nánar á vefsíðunni mii.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum