fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Innréttingar og tæki: Litagleði og baðherbergislausnir fyrir nútímamanninn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 11. nóvember 2018 14:00

Litagleði í baðvöskum

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fyrir um það bil einu og hálfu ári fórum við að selja alveg frábæra sturtubotna frá fyrirtækinu Gala á Spáni. Um er að ræða sturtubotna úr granít/stonex-efni sem er alveg sérstaklega endingargott og sterkbyggt,“ segir Íris Jensen. Botnarnir eru sérstaklega gerðir fyrir opnar sturtur (walk-in) sem hægt er að ganga inn í. Gala-sturtubotnarnir fást í eins til tveggja metra lengdum og koma tilbúnir með innbyggðum halla sem auðveldar alla uppsetningu til muna. Flísarnar eru í þriggja sentimetra þykkt og er hægt að skera eftir máli þannig að þær passa inn í flesta sturtuklefa og sturtulausnir. Þær eru enn fremur bornar stamri gelkvoðu sem gerir botninn að stöðugu undirlagi fyrir fólk að ganga á og athafna sig í sturtunni.

Fallegar stílhreinar sturtur fyrir nútímamanninn

Litagleði

Það skemmir svo ekki fyrir að granít/stonex-botnarnir frá Gala fást í ýmsum litum. „Þeir eru ekki bara hvítir, heldur er líka hægt að fá svarta botna, drapplitaða og gráa. En undanfarið hefur fólk verið að leita töluvert meira eftir að fá liti inn í baðherbergin.

 

Litirnir sem GLOBO býður upp á

Við bjóðum til dæmis upp á svört, mött blöndunartæki frá FIMA Carlo Frattini á Ítalíu, sem eru alveg einstaklega smart. Einnig erum við með litaðar handlaugar og lituð salerni frá GLOBO á Ítalíu. Við erum ekki að tala um pastelliti áttunda áratugarins, eins og ljósbleik salerni eða ljósgul. En það kemur kannski aftur,“ segir Íris og hlær en bendir síðan á að í dag velji fólk meira jarðliti eins og gráan og drapplitaðan. „Þessir litir koma alveg einstaklega vel út inni á baðherbergjum nútímans,“ segir Íris.

Svört og mött blöndunartæki

Engin fúga, ekkert vesen

„Mesti lúxusinn Gala-botnana er að það er engin þörf fyrir fúgu, sem gerir botninn að algjöru himnaríki þegar kemur að þrifum. Auk þess sem fúga á milli flísa á það til að gulna, litast og eyðast með tímanum. Með Gala-sturtubotnunum er þetta vandamál úr sögunni. Engin fúga, ekkert vesen,“ segir Íris.

Glerlausnir fyrir lítil rými

Innréttingar og tæki bjóða upp á mikið úrval af glerveggjum í ýmsum stærðum og gerðum sem passa til dæmis með sturtubotnunum góðu. „Við erum til dæmis með fasta glerveggi með lausum væng fyrir lítil rými svo þau nýtist til fullnustu,“ segir Íris.

Stór lager, engin bið

„Við erum yfirleitt með um þrjátíu gerðir af sturtulausnum til á lager sem gerir það að verkum að þegar fólk kemur til okkar þá er biðtími eftir sturtulausnum og öðrum baðherbergislausnum nánast enginn. Það er oft hægt að fara beint heim og byrja á uppsetningu undir eins. Þar sem Gala-sturtubotninn er sérpantaður þá er hann allajafna ekki til á lager,“ segir Íris.

 

Nánari upplýsingar má nálgast á jensenbjarnason.is

Ármúli 31, 108 Reykjavík

Sími: 588-7332

Póstfang: i-t@i-t.is

Opið alla virka daga frá 9–18 og laugardaga 11–15.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum