fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Kvikkfix: Viatti-dekkin eru bylting í vetrardekkjum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Laugardaginn 10. nóvember 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Rússarnir koma – við erum að fara að bjóða, í fyrsta skipti til almennings á Íslandi, nýja gerð af dekkjum sem eru alveg geggjuð. Um er að ræða vetrardekk sem hönnuð eru af Ítölum og Þjóðverjum í samvinnu og framleidd í verksmiðjum í Rússlandi – sérstaklega fyrir rússneska veturinn og rússneska sveitavegi. Þetta eru virkilega agressíf vetrardekk sem henta líka sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður og eru á hlægilega lágu verði,“ segir Hinrik Morthens hjá bílaþjónustufyrirtækinu Kvikkfix. Rússnesku dekkin Viatti verða bylting á dekkjamarkaðnum hér á landi.

„Stóru bílaleigurnar hafa verið að nota þessi dekk undanfarið með frábærum árangri en núna er kominn tími til að bjóða almennum bíleigendum þau. Það var heildsali í Belgíu sem fékk leyfi til að selja dekkin í Evrópu og hann hefur ekki undan,“ segir Hinrik.

Kvikkfix flytur inn alla sína varahluti sjálft og tekst með þeim hætti að halda verði á þjónustunni mjög niðri. „Það er allur heimurinn undir og við flytjum inn varahluti frá ýmsum löndum. Við erum engum háðir og getum boðið frábært verð. Við þykjum vera vægast sagt sanngjarnir í verði,“ segir Hinrik. Kvikkfix sérhæfir sig meðal annars í dekkjum, rafgeymum, olíu- og síuskiptum, bremsum, rúðuþurrkum, pústkerfum og dempurum.

Fyrir utan góðar vörur á lágu verði býður Kvikkfix upp á toppþjónustu enda er fyrirtækið í góðu húsnæði með fyrsta flokks búnaði og toppaðstöðu.

KvikkFix er til húsa að Hvaleyrarbraut 4–6 í Hafnarfirði. Sími er 575-1500. Bráðlega líður að þeim tíma þegar bíleigendur þurfa að hringja og panta dekkjaskipti fyrir bílinn. Þá er kjörið að prófa nýju mögnuðu Viatti-vetrardekkin á frábæru verði.

Sjá nánar á vefsíðunni kvikkfix.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum