Smákranar ehf. er öflugt fjölskyldufyrirtæki sem var stofnað fyrir 15 árum þegar eigendur þess, Erlingur Snær Erlingsson og Hildur Björg Ingibertsdóttir, kynntust nýrri tegund af vinnuvélum – svonefndum smákrönum. Stærð, eða smæð krananna gerir það að verkum að hægt er að fara með þá á afvikna og þrönga staði þar sem önnur tæki komast ekki að, til dæmis inni í byggingum, í görðum, kjallarabyggingum, uppi á þökum háhýsa o.fl. Smákranar veita þannig sérhæfða þjónustu á sviði lyftingatækni þar sem leitast er við að uppfylla þarfir og væntingar viðskiptavina á sem hagkvæmastan hátt.
Smáir kranar, risastór verkefni og risastór gler
Stærsti hluti af starfsemi fyrirtækisins frá upphafi hefur verið hífingar á stórum og miklum glerjum allt frá um 150 kílóa rúðum upp í þyngstu rúður sem hafa verið settar upp á Íslandi. Smákranar vinna fyrir aðila sem setja upp stök gler eða heilu gluggakerfin í húsnæði í einkaeigu eða í eigu opinberra aðila. „Umsvif fyrirtækisins hafa hægt og sígandi aukist og frá því við byrjuðum höfum við tekið þátt í mörgum af stærri framkvæmdum sem hafa verið á Íslandi undanfarinn áratug. Meðal annars má nefna stækkun flugstöðvarinnar í Keflavík, Háskólann í Reykjavík, Hörpuna, H&M í Smáralind, hótel Bláa lónsins og margt fleira,“ segir Erlingur.
Fossinn: stærsta rúða á Íslandi
„Árið 2007 settum við upp mörg tonn af gleri í Arion bankahúsinu. Þar á meðal hífðum við stærstu og þyngstu rúðu sem hefur verið sett upp á Íslandi,“ segir Erlingur. Um er að ræða verk sem kallast Fossinn en vatn rennur niður glerið og myndar eins konar foss. Rúðan er 3×6 metrar eða 18 fermetrar og vegur hún um 1.800 kíló. Þurfti þá að nota tvo smákrana og lyftara til þess að setja upp ferlíkið.
Tekur 6 tonn í bekk
Smákranar hafa enn fremur tekið þátt í miklum fjölda verkefna og t.a.m. voru kranar fyrirtækisins notaðir til að hífa upp hvalalíkön fyrir Hvalasýninguna Whales of Iceland á Granda. „Í dag erum við með stóran smákrana sem getur farið inn í hús og lyft allt að 6 tonnum. Við notuðum hann nýverið við að hífa innandyra 4,5 tonna flugvélamótor af Boeing 747 sem Air Atlanta gaf flugvirkjanámi Keilis,“ segir Erlingur.
Ótrúleg lyftigeta
Í dag eru Smákranar með umboð frá þýska fyrirtækinu Robert Kappel sem einblínir á framleiðslu á sogskálum til hífingar og uppsetningar á allt að 6 tonna glerjum. Smákranar eiga fimm sogskálar með 300–1.500 kílóa lyftigetu. „Við erum í raun eina fyrirtækið á Íslandi sem getur híft þyngri gler en 1 tonn með ábyrgum og öruggum hætti. Ef einhver kemur til okkar og þarf að hífa allt að 6 tonna gler þá gætum við pantað viðeigandi sogskál frá Robert Kappel og híft glerið með öruggum hætti,“ segir Erlingur.
Einnig bjóða Smákranar upp á leigu á sogskálunum og meðal annars hafa verið sett upp 12–14 fermetra rúða í Brimborg og fjórar 900 kílóa rúður í Hafnartorgi með sogskálinni góðu. Helstu eiginleikar sogskálanna er sá að hægt er snúa glerjunum úr láréttri stöðu í lóðrétta með mótorum sem eru á skálinni í stað þess að nota handafl. Enn fremur er hægt að halla glerjunum frá því að vera lóðrétt yfir í lárétt með rafstýrðum glussatjökkum. Þetta gerir flutning og hífingar á stórum glerjum töluvert áhættuminni en áður. „Nú síðast nýttum við eiginleika sogskálarinnar til þess að skáskjóta fjórum 500 kílóa rúðum inn um inngang í Smáralindinni fyrir nýjan verslunarglugga þar inni,“ segir Erlingur.
Nánari upplýsingar má nálgast á smakranar.is
Stórihjalli 15 – 200 Kópavogur
Sími: 699-4241
Netpóstur: ese@smakranar.is.