fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Hótel Laugarbakki: Ógleymanleg villibráðarhlaðborð og jólahlaðborð

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 7. október 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hótel Laugarbakki er afskaplega vel staðsett í náttúrufegurð Miðfjarðar með Hvítserk, Kolugljúfur og Borgarvirki í kring. Þetta er nákvæmlega miðja vegu milli Reykjavíkur og Akureyrar og akstursvegalengdin er rétt um 200 kílómetrar frá hvorum stað. „Hér er mikil uppbygging og fólk er að uppgötva þetta svæði, Suðurlandið er að miklu leyti mettað en hingað er spennandi að koma því það er svo mikið líf hérna í Húnaþingi,“ segir Hildur Ýr Arnarsdóttir, hótelstjóri að Hótel Laugarbakka.

Afbragðsgóður veitingastaður, Bakki, er rekinn að Hótel Laugarbakka og er hann ekki síður fyrir ferðalanga sem eiga leið um en gesti hótelsins. „Ég er hér með tvo frábæra kokka, hann Ingvar Óla yfirmatreiðslumann og svo hana Svövu Karen. Við leggjum mikla áherslu á ferskt hráefni úr héraðinu, kjöt, fisk og jurtir,“ segir Hildur.

Dýrindis krásir, frábær skemmtiatriði og dansinn dunar

Framundan eru bæði villibráðarhlaðborð og jólahlaðborð á Hótel Laugarbakka en þessi kvöld eru vinsæl bæði hjá hópum og einstaklingum. „Þetta er vinsælt hjá fyrirtækjum á Norðurlandi og alla leið niður í Borgarfjörð. En þessi kvöld eru opin fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki og við gerum fólki tilboð. Það er gott að fara að panta sem fyrst enda komnar inn margar pantanir og dagskráin er glæsileg,“ segir Hildur.

Villibráðarhlaðborð verður laugardagskvöldið 27. október. Dýrindis krásir eru á borðum, meðal annars hreindýrabollur í villibráðarsósu, humarsúpa og humar, gæsaconfit og grafin gæs, hreindýra carpaccio og margt fleira. Lifandi tónlist verður eftir borðhaldið.

Hugguleg gisting

Jólahlaðborðin eru síðan 30. nóvember og 1., 7. og 8. desember. Þá verður glæsileg skemmtidagskrá en veislustjóri er eftirherman og skemmtikrafturinn Jóhannes Kristjánsson. Íslandsmeistararnir í samkvæmisdönsum sýna listir sínar og síðan leikur hljómsveit fyrir dansi fram eftir kvöldi.

Meðal kræsinga á jólahlaðborði eru purusteik, kalkúnabringa, kryddjurtalegið lambalæri og hægeldað nautafille. Heimagert laufabrauð, grafin gæs, humarsúpa og tvíreykt hangikjöt og margt fleira einnig í boði.

Norðurljósadýrð

Auk þessara föstu dagsetninga geta fyrirtækið pantað jólahlaðborð á öðrum kvöldum og mörg þeirra gera þetta að árshátíð fyrirtækisins í leiðinni. Þá er kjörið að taka gistingu líka á hótelinu. Nú þegar hafa nokkur fyrirtæki pantað sér jólahlaðborð en það eru ennþá laus kvöld.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni laugarbakki.is og Facebook-síðunni Hótel Laugarbakki þar sem finna má nákvæma matseðla og dagskrá kvöldanna. Einnig er hægt að fá upplýsingar og leita tilboða í síma 862-6168 .

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum