fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Á ferð og flugi: Stækkandi flutningafyrirtæki á landsbyggðinni

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 6. október 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég byrjaði með einn bíl, árið 2016 voru þetta 2–3 bílar en síðan þá hefur þetta aukist stöðugt, í dag erum við með sjö bíla og það er einn nýr bíll á leiðinni fyrir komandi vetur,“ segir Stefán Þór Jónsson, bílstjóri og eigandi flutningafyrirtækisins Á ferð og flugi. Starfsemin hefur dafnað jafnt og þétt undanfarin misseri en þegar fyrirtækið var stofnað í mars árið 2015 var bara einn flutningabíll í eigu þess.

„Við erum aðallega í vöruflutningum, keyrum fyrir Samskip, Eimskip og Vörumiðlun. Við sjáum líka um allan áætlunarakstur með vörur til Mývatns frá Akureyri. Þetta eru mikið matvörur, byggingarvörur og síðan ýmislegt fleira,“ segir Stefán, en bílstjórar fyrirtækisins fara einnig oft milli Akureyrar og Seyðisfjarðar í tengslum við ferðir ferjunnar Norrænu.

Elti ástina til Akureyrar

Stefán Þór Jónsson er Reykvíkingur en flutti til Akureyrar fyrir tveimur árum, tók með sér eitthvað af verkefnum sem hann var með í Reykjavík og síðan hefur starfsemin bara vaxið: „Ég byrjaði með flutningabíl í Reykjavík en kærastan mín er héðan, hún vildi flytja norður og ég sló til og ákvað að sjá hvort ég fengi eitthvað að gera hér. Ég tók með mér hluta af vinnunni norður, Smyrilline-verkefnin fyrir norðan og svo var ég alltaf að keyra fyrir Samskip og Eimskip í Reykjavík líka, ég sagði þeim að ég væri að flytja mig norður og það var ekkert mál.“

Bílstjórarnir hjá fyrirtækinu eru nú orðnir samtals sex. Stefán Þór Jónsson og unnusta hans, Sigríður Þorsteinsdóttir, keyra bæði hjá fyrirtækinu en auk þeirra eru fjórir aðrir bílstjórar í fullu starfi.

„Fyrirtækið hefur stækkað mikið síðustu ár, og við höfum náð að bæta við okkur tækjum til þess að sinna þeim verkefnum sem við erum með,“ segir Stefán.

Eins og komið hefur fram hér keyrir Á ferð og flugi mikið fyrir stór og þekkt flutningafyrirtæki en Stefán hefur áhuga á samstarfi við fleiri aðila: „Við erum bara verktaki og keyrum fyrir hvern sem er,“ segir Stefán en þeir sem hafa áhuga á að nýta sér flutningaþjónustu hans geta hringt í síma 789-1060, sent tölvupóst á netfangið stebbij@gmail.com eða haft samband í gegnum Facebook-síðuna https://www.facebook.com/aferdogflugi/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum