fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Optima: Verðmæti og trúnaðargögn í þjófheldum og eldtefjandi hirslum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 27. október 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Optima ehf. var stofnað árið 1953 og hefur allar götur síðan þjónustað fyrirtæki með skrifstofuvörur. Optima var fyrsti aðilinn hér á landi til að flytja inn ljósritunarvélar og síðan þá hefur þjónustan þróast í takt við tímann. Í dag er Optima einn af stærstu sölu- og þjónustuaðilum í prentbúnaði og prentlausnum og býður þekkt merki á borð við Ricoh og Xerox.

Optima býður jafnframt fjölbreytt vöruúrval sem tengist öryggi fyrirtækja og einstaklinga. Má þar nefna öryggisskápa, munaskápa og eldtraustar skjalahirslur í öllum stærðum.

Eldtefjandi öryggisskápar og öryggisskjalaskúffur

Að sögn Hildar Birnu Gunnarsdóttur, sölustjóra Optima, hefur sala á öryggisskápum fyrir heimili farið vaxandi undanfarin ár og tekið kipp eftir innbrotahrinu undanfarin misseri. „Við bjóðum einnig upp á eldtefjandi öryggisskápa sem og eldtefjandi skjalaskúffur sem henta vel undir mikilvæg trúnaðargögn,“ segir Hildur. „Eldtöf getur verið í allt að tvær klukkustundir sem eykur líkur á að verðmætin verði ekki eldi að bráð,“ segir hún.

Hún bendir einnig á að sala á sérstökum öryggisskápum fyrir hótel hafi vaxið mjög undanfarin ár í takt við aukna uppbyggingu hótela. Sem ferðamenn þekkjum við öll þá tilfinningu að vilja geta treyst á öryggishólfið í herberginu okkar.

Uppgjörsskápur og seðlabox

„Við bjóðum upp á uppgjörsskápa fyrir fyrirtæki. Starfsmaðurinn ber eingöngu ábyrgð á að setja uppgjör dagsins í hólf og fellur það ofan í læst hólf sem eingöngu yfirmenn komast í. Enn fremur bjóðum við upp á sérstök seðlabox fyrir peningaseðla sem staðsett eru hjá afgreiðslufólki. Starfsfólk setur þá verðmætari seðla í boxið í stað afgreiðsluskúffu,“ segir Hildur. Ef til þjófnaðar kemur er hindrað aðgengi að stærstu seðlunum.

„Mjög stór liður í okkar rekstri er sala á starfsmanna-, nemenda- og munaskápum til fyrirtækja, stofnana og skóla. Þar á hver starfsmaður eða nemandi læsanlegt hólf eða skáp til afnota og getur verið öruggur um að verðmæti hans séu á góðum stað meðan á vinnu stendur.“

Optima selur líka talningarvélar fyrir banka sem eru með öryggisskanna sem skannar falsaða seðla.

Optima er til húsa á tveimur stöðum, að Ármúla 13 í Reykjavík, og Glerárgötu 28 á Akureyri. Í Ármúlanum er, auk skrifstofu, sýningarsalur þar sem hægt er að skoða allar helstu vörurnar, öryggisvörur og aðrar skrifstofuvörur fyrirtækisins. Opið er virka daga frá 9 til 17.

Sjá nánar á optima.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum