fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Zolo & Co. – Vörur sem hreinsa loftið og fegra umhverfið

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 19. október 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ilmolíulampar eru allt í senn rakatæki sem hreinsa loftið, ilmgjafar ef vill, einnig eru þeir jónatæki og senda frá sér svokallaðar negatífar jónir sem hafa, þrátt fyrir nafnið, jákvæð áhrif á líðan fólks. Þetta er ekki ósvipuð upplifun og að standa nálægt fossi eða í flæðarmálinu niðri á strönd. Verslunin Zolo & Co. er með mikið úrval af ilmolíulömpum með margbreytilegu útliti en sambærilega virkni. „Munurinn á lömpunum er útlitið og misstórir vatnstankar, en stærð vatnstanksins ræður því hvað lampinn gengur lengi í einu. Maður einfaldlega setur vatn í lampann og síðan er hægt að bæta við ef vill ilmolíu eða ilmkjarnaolíu að eigin vali, en við erum með gríðarlegt úrval af olíum,“ segir Sunna Dís Ólafsdóttir sem rekur Zolo & Co. ásamt móður sinni, Rúnu Kærnested Óladóttur, en þetta litla fjölskyldufyrirtæki er til húsa að Hafnargötu 23 í Keflavík. Einnig eru þær með vefverslunina zolo.is 

Auk ilmolíulampa býður Zolo & Co. upp á margs konar fallegar heimilisvörur og öðruvísi gjafavöru, til dæmis alls konar ilmkerti, ilmstangir, glervöru, stóla, borð, maska og fleiri muni. „Vinsælasta varan okkar um þessar mundir er Zolo-herbergisúðinn sem býður upp á þrjár ótrúlega góðar ilmtegundir,“ segir Sunna Dís og segir okkur frá nýrri og spennandi vöru sem verslunin er að taka í sölu núna, en það er sambyggður hátalari, lampi og vínkælir. Þessi óvenjulega samsetning er að virka vel því varan er mjög vinsæl um alla Evrópu að sögn Sunnu sem er spennt fyrir því að sjá hvaða viðtökur þessi nýjung fær meðal Íslendinga.

Zolo er íslenskt merki en vörur undir Zolo-merkinu eru hannaðar erlendis í samráði við eigendur verslunarinnar. „Við fylgjum þessu vel eftir og ég er mjög stolt af þessari vörulínu,“ segir Sunna.

„Svo er líka gaman að segja frá því að við erum að fara að taka upp æðislega spennandi jólavörur núna á næstunni sem þetta eru allt öðruvísi jólavörur en við höfum áður séð hérlendis. Svo verð ég líka að minnast á jólailmolíurnar okkar í lampana, en þær hafa svo sannarlega slegið í gegn síðustu árin.“

Verslunin er að Hafnargötu 23 í Keflavík, hún er opin virka daga frá 11 til 18 og 11 til 16 á laugardögum. Síminn er: 588-6777. Vefverslunin zolo.is er að sjálfsögðu opin allan sólarhringinn og þar er gott að skoða allt úrvalið og gera góð kaup. Sjá einnig Facebook-síðuna Ilmolíulampar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum