fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Húðin Skin Clinic: Heilbrigðari húð og aukin vellíðan í jólagjöf

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 13. október 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Húðin Skin Clinic er húðmeðferðarstöð að Hátúni 6b í Reykjavík þar sem veittar eru fjölbreyttar húðmeðferðir og afar fagleg þjónusta. Þar starfa Lára G. Sigurðardóttir, sem er læknir og doktor í lýðheilsuvísindum, Sigríður Arna Sigurðardóttir, hjúkrunar- og förðunarfræðingur, Drífa Ísabella Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur og Esther Helga Ólafsdóttir, móttökuritari og snyrtifræðingur.

Viðskiptavinir Húðarinnar Skin Clinic geta verið vissir um að fá góða þjónustu sem veitt er af menntuðu og þrautþjálfuðu fagfólki. Áhersla er lögð á að halda náttúrulegu útliti og húðinni heilbrigðri og fallegri. Auk fjölda húðmeðferða er boðið upp á einstaklingsmiðaða ráðgjöf.

Sársaukalaus háreyðing með laser

Háreyðing með laser er ein vinsælasta meðferðin hjá Húðinni bæði hjá körlum og konum. Rakstur og vax valda oft inngrónum hárum og hverfur það vandamál gjarnan eftir lasermeðferð. Lasermeðferðin eyðir hvimleiðum hárum varanlega eða í langan tíma.

Lára G. Sigurðardóttir hjá Húðinni bendir á að margir óttist lasermeðferðir þar sem þær hafa haft orð á sér fyrir að vera sársaukafullar. „Við notum hins vegar lasertæki sem byggir á annarri tækni en þeirri hefðbundnu og hjá okkur er meðferðin ekki sársaukafull heldur beinlínis notaleg. Vissulega eru sum svæði viðkvæmari, eins og þar sem eru margir taugaendar.“

Frábært tilboð á andlitslyftingu með laser

Önnur vinsæl meðferð er andlitslyfting með laser, sem gengur oftast undir nafninu laserlyfting. „Þetta er andlitslyfting án skurðaðgerðar þar sem laser er notaður til að byggja upp húðina innan frá. Línur minnka og húðin verður þéttari, sléttari, hraustlegri og unglegri. Okkur langar að gera vel við viðskiptavini okkar og bjóðum því þessa eftirsóttu meðferð með 30% afslætti í október og því ættu vonandi fleiri að geta nýtt sér hana.

Fyllt upp í djúpar línur með áhrifaríkum hætti

Notkun á Restylane fylliefni til að fylla í djúpar línur í húðinni er önnur vinsæl og áhrifarík meðferð hjá Húðinni. Restylane, sem er gert úr náttúrulegu rakaefni húðarinnar, er sett rétt undir húðina og henni lyft. Þannig hverfa línurnar eða verða minna sýnilegar. Varir minnka oft með aldrinum og einnig er hægt að nota Restylane til að gefa meiri fyllingu í þær. Eftir meðferð með fylliefnum er ekki óalgengt að heyra hve úthvíldur maður er eða líti vel út.

Húðslípun til að fríska upp á húðina

Húðslípun (microdermabrasion) er vinsæl meðferð hjá ungu fólki enda vinnur hún gegn bólum og fílapenslum. Notað er demantshúðslípunartæki sem fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar endurnýjun ysta lags húðarinnar. Meðferðin gerir húðina sléttari og jafnar litaáferð auk þess sem hún virkar á þurra húð og gefur aukinn ljóma. Við erum með 20% afslátt af húðslípun um þessar mundir.

Lára segir jafnframt að auk meðferðanna leggi stofan áherslu á hvað fólk geti gert sjálft til að hlúa vel að húðinni enda hefur lífsstíll mikið að segja um hvernig húðin stenst tímans rás.

Gjafabréf að eigin vali

Gjafabréf í húðmeðferð er frábær hugmynd að jólagjöf á þeim tímum þegar fólk hefur sankað að sér mörgum hlutum og vill kannski frekar fá upplifun eða vellíðan í jólagjöf.

Á vandaðri heimasíðu Húðarinnar, hudin.is, eru ítarlegar upplýsingar um allar meðferðir. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 783-2233.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum