fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Að öðlast aðgengi að eigin styrkleikum

Kynning

Komdu á flug með KVAN

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 5. janúar 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„KVAN er fyrirtæki sem sérhæfir sig í að styðja við einstaklinga og hópa til að vaxa, þroskast og öðlast aðgengi að eigin styrkleikum. Það gerum við með námskeiðum, ráðgjöf og þjálfun,“ segir Jón Halldórsson, framkvæmdastjóri og þjálfari hjá KVAN.

„Við höfum óbilandi trú á því að allir einstaklingar á öllum aldri eigi að fá tækifæri til þess að blómstra á sínu sviði. Við þjálfum fullorðið fólk, ungt fólk, fagaðila sem starfa með ungu fólki og nú á nýju ári erum við einnig að setja fókusinn á fyrirtækjaþjálfun.“

Hjá fyrirtækinu starfa sjö einstaklingar sem allir eru með menntun á uppeldissviði auk þess að hafa áralanga reynslu í kennslu og þjálfun með fólki á öllum aldri.

KVAN fyrir ungt fólk á öllum aldri
KVAN fyrir ungt fólk á öllum aldri

KVAN námskeiðið

„Við þjálfum einstaklinga í að efla sjálfstraust sitt og takast á við daglegar áskoranir, sama hvort það er í starfi, skóla eða einkalífi. Þetta gerum við með því að vinna alltaf út frá styrkleikum hvers og eins, við höfum svo mikla trú á því að skoða alltaf öll mál út frá styrkleikum einstaklinganna,“ segir Jón.

„Við hjálpum fólki að setja sér skýr markmið og kennum því að finna út jákvæða leiðtogahæfileika sína sem efla það í því að hafa góð áhrif á sitt nærumhverfi og sjálft sig. Það er svo magnað að sjá hversu mikið meira býr oft í fólki en það gerir sér grein fyrir og þá eiginleika er svo miklu auðveldara að kalla fram þegar við horfum til styrkleika hvers og eins.

Við aldursskiptum námskeiðunum til þess að allir geti náð að tengja efnistök námskeiðsins við sínar þarfir. Við erum með KVAN fyrir ungt fólk og fullorðna.“

Námskeiðið fyrir unga fólkið er í átta vikur, kennt einu sinni í viku. Námskeiðið fyrir fullorðna er í sex vikur, kennt einu sinni í viku.

Sandra Björg Helgadóttir, þjálfari hjá KVAN
Sandra Björg Helgadóttir, þjálfari hjá KVAN

Vináttuþjálfun

„Við bjóðum upp á vináttuþjálfun fyrir börn á aldrinum 7–12 ára. Þessi námskeið henta öllum börnum en
eru þó sérstaklega gagnleg fyrir börn sem hafa upplifað félagslega einangrun, vináttuleysi, einelti eða aðra höfnun. Það skiptir svo miklu máli að hjálpa þeim eins fljótt og auðið er að takast á við áskoranir í sínu lífi og láta þau fá tæki og tól sem þau geta nýtt til þess að sigrast á áskorunum.“
Námskeiðið í vináttuþjálfun er í átta vikur, einu sinni í viku.

Lausnir fyrir fagaðila sem starfa með ungu fólki

„Við höldum fjölmörg námskeið fyrir fagaðila sem starfa með ungu fólki: Flaggskipið okkar þar er námskeið sem heitir Verkfærakistan. Í ár erum við að mennta 300 kennara og aðra fagaðila á þessu námskeiði þar sem megináherslan á námskeiðinu er lögð á að þjálfa fagaðila í að vinna með hópa og einstaklinga sem eiga í samskipta- og félagslegum vanda.
Við leggjum mikið upp úr faglegu starfi og til að mynda erum við með einstaklinga frá Háskóla Íslands sem eru að rannsaka hvaða árangri þetta námskeið skilar.

Við höfum fengið mjög góð viðbrögð við Verkfærakistunni því samhliða námskeiðinu nýta kennararnir verkfærin með bekknum sínum. Með rannsókninni vonumst við til að fá nánari þekkingu á því hvaða þættir skipta mestu máli og af hverju,“ segir Jón.

„Í næstu viku höldum við hjá KVAN kynningarfundi þar sem fólki gefst tækifæri til að koma til okkar og kynna sér námskeiðin okkar. Frítt er á kynningarfundina.

Kynningarfundir

Vináttuþjálfun, þriðjudaginn 9. janúar kl.19
KVAN fyrir ungt fólk 13–25 ára, miðvikudaginn 10. janúar kl.19
KVAN fyrir fullorðna, miðvikudaginn 10. janúar kl. 20.15
Hábraut 1a, Kópavogi.
Skráðu þig á www.kvan.is

Næstu námskeið

KVAN fyrir fullorðna hefst 24. janúar
KVAN fyrir 13–15 ára hefst 22. janúar
KVAN fyrir 16–19 ára hefst 23. janúar
KVAN fyrir 20–25 ára hefst 25. janúar
Vináttuþjálfun fyrir 7–9 ára hefst 27. janúar
Vináttuþjálfun fyrir 10–12 ára hefst 24. janúar

Sjá nánar á kvan.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum