fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
FókusKynning

Heilnæm bætiefni úr hreinleika íslenskrar náttúru

Kynning

Pure Natura framleiðir bætiefni úr íslenskum afurðum

Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 28. janúar 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sprotafyrirtækið Pure Natura hóf þróunarvinnu árið 2015. Fyrstu vörurnar komu á markað í mars árið 2017 og fleiri vörur eru í þróun. Pure Natura er rekið af konum og þar starfa eingöngu konur. Þær hafa það að markmiði að framleiða hágæða fæðubótarefni og nýta til þess afurðir sem annars væru lítt notaðar eða hent og koma þannig í veg fyrir matarsóun og mengun. Einnig býður fyrirtækið upp á áfyllingu á bætiefnadósirnar því umhverfið er þeim dýrmætt og hugleikið.

„Við framleiðum fæðuunnin bætiefni, sem þýðir að við notum alvöru mat í okkar vörur. Það eru engin einangruð efni eða einangruð vítamín sett í vöruna. Þessi aðferð hefur verið að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum og víðar. Fólk er alltaf að átta sig betur og betur á hversu mikilvægt það er að neyta heilnæmrar fæðu, það sama hlýtur því að gilda um bætiefnin sem við neytum,“ segir Hildur Þóra Magnúsdóttir, eigandi Pure Natura.

Sigríður Ævarsdóttir, Rúna Kristín Sigurðardóttir og Hildur Þóra Magnúsdóttir.
Konurnar á bak við Pure Natura Sigríður Ævarsdóttir, Rúna Kristín Sigurðardóttir og Hildur Þóra Magnúsdóttir.

„Við hjá Pure Natura erum að nýta þetta tækifæri varðandi hreinleika Íslands, því ef fólk er farið að nýta bætiefni unnin úr mat þá hlýtur uppruni vörunnar að skipta máli.“ Vörurnar eru komnar á markað í Bandaríkjunum og hefur verið einstaklega vel tekið þar.

Vörurnar hafa unnið til verðlauna

Vörum Pure Natura hefur verið vel tekið og hafa unnið til verðlauna. „Við erum búnar að ná góðum árangri, við vorum Matarfrumkvöðlar Íslands, kepptum um Embluverðlaunin og ég var tilnefnd til EUWINN, sem eru frumkvöðlaverðlaun kvenna, í Evrópu árið 2017.

Við erum þrjár konur með gríðarlega stóra hugsjón, sem viljum nýta reynslu okkar og þekkingu og búa til vörur sem standa öðrum framar að gæðum og hreinleika. Við erum að taka nýja, heildræna nálgun, blöndum saman næringarfræði, hómópatíu og grasalækningum, eitthvað sem hefur ekki verið gert hér áður,“ segir Hildur.

„Fyrir okkur snýst þetta svolítið um að horfa á nýjan hátt á hlutina, við viljum að þetta sé „win-win“ konsept, við erum að nýta afurðir sem annars væri hent og erum þannig að koma í veg fyrir matarsóun og mengun.“

Vörur ríkar af járni og vítamínum

Vörurnar frá Pure Natura sem nú eru komnar á markað innihalda lambalifur, lambahjörtu og handtíndar íslenskar jurtir. Innmatur er ofurfæða og sérlega ríkur af járni, A- og B-vítamínum.

„Pure Liver er rosalega vinsæl hjá okkur,“ segir Hildur. „Þar er lambalifur í grunninn, hvannafræ fyrir minni og einbeitingu, birki sem er gott við bólgum og er vatnslosandi og fíflarót sem er hreinsandi og lifrarstyrkjandi.

Við erum að hugsa þetta allt í stærra samhengi og vörur okkar sem eru í þróun eru hugsaðar út frá hráefni sem er til, þannig að þetta er sjálfbært og við erum ekki að ganga á neinar auðlindir. Við hugsum um nýtingu.“

Vörurnar frá Pure Natura fást í helstu heilsuvöruverslunum, nokkrum bændamörkuðum og í vefverslun á heimasíðunni purenatura.is. Einnig er Pure Natura á Facebook: purenatura.is.

Umsagnir:
Ég hef tekið Pure Heart og Pure Liver síðan vörurnar komu á markað og er mjög ánægður með þær. Ég er ekki bara mun orkumeiri heldur finnst mér þær hafa afar góð áhrif á bæði sál og líkama. Ég er laus við bæði exem á olnbogum og flösu og pirring í hársverði. Mér finnst hárið vaxa meira og vera þykkara og síðast en ekki síst hafa hrukkur í andliti og hálsi minnkað til muna. Ég hefði ekki trúað því að óreyndu hvað þessi efni gera mér gott. Varð uppiskroppa með töflurnar í rúma viku og fann mun á mér til hins verra á þeim stutta tíma en það skilaði sér fljótt til baka þegar ég byrjaði að taka þær aftur.
-Marínó Bjarnason

Ég hef tekið Pure Liver síðan í ágúst og er mjög ánægð með þær. Ég fann strax mun á hvað ég varð orkumeiri, léttari í skapi og og leið vel andlega og líkamlega. Ég hef alltaf verið að berjast við járnskort og hef þurft að fara að fá járn í æð tvisvar sinnum á ári. Núna er ég orðin góð í járni og einnig hefur blóðhagur minn aukist. Ég myndi mæla með að allir sem vilja bæta járni í líkama sinn prófi þessar töflur og myndi ég ekki vilja vera án þeirra.
-Ásbjörg Valgarðsdóttir

Það var 12. ágúst sl. sem ég sá þessa vöru fyrst. Ég er ekki lengur ung að árum, verð 68 ára í febrúar nk. Ég vinn fulla vinnu og rúmlega það og stunda mikið útivist með hundunum mínum. Mitt vandamál hefur verið að ég er ekki dugleg að borða og finn sjaldan til hungurs. Það tekur skiljanlega sinn toll. Ég var hálforkulaus og með mikið hárlos sem hefur verið viðvarandi í nokkur ár og með mikla liðverki í höndunum. Eftir að hafa kynnt mér þessa vöru ákvað ég í samráði við Siggu sem þekkir til mín að taka Pure Liver og Pure Power, tvö hylki af hvoru að morgni dags. Nú er ég að klára þennan skammt og áhrifunum er vart hægt að lýsa. Ég er full af orku og líður svo mikið mikið betur. Hárlosið horfið, haustkvefið sem ég hef alltaf fengið á bilinu september/október hefur ekki látið sjá sig og liðverkirnir í höndunum eru horfnir en ég gat ekki orðið undið tusku. Með betri líðan batnar útlit manns og ég er ekki frá því að húðin sé mýkri og sléttari. Í dag mæti ég í vinnu kl. 7:20 alla daga nota hádegið frá 12–14 að fara út með hundana mæti aftur í vinnuna og tvisvar í viku fer ég og dansa Zumba í klukkutíma, en það er frábær hreyfing fyrir líkama og sál. Ég er einfaldlega full af orku þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum erfiða sjúkdóma og ýmsa erfiðleika í gegnum tíðina. Ég ætla að halda áfram að taka Pure Natura næringarefnið og er afskaplega þakklát fyrir að hafa kynnst þessari frábæru vöru. Takk kærlega fyrir mig.
-Elín Lára Sigurðardóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum