fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Hugaðu að vetrinum: Veldu finnsku gæðadekkin frá Nokian hjá MAX1

Kynning
Kynningardeild DV
Föstudaginn 14. september 2018 16:00

Reynsla Nokian af Aramid hliðarstyrkingunni er gríðarlega góð og svo góð að Nokian tryggir öll dekk með Aramid hliðarstyrkingu

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Nú er mikilvægt að fara að huga að vetrinum tímanlega og forðast örtröð í dekkjaskiptum. Við hjá MAX1 bjóðum finnsku gæðadekkin frá Nokian sem eru sérhönnuð fyrir notkun á norðlægum slóðum í mörgum verðflokkum. MAX1 leggur áherslu á að veita viðskiptavininum ráðgjöf við val á dekkjum því dekk eru flókin vara og mismunandi hvað hentar hverjum og einum. Skoðaðu úrvalið á vefsíðu okkar https://www.max1.is.“

Vertu ábyrgur ökumaður því ökutæki á lélegum dekkjum er líklegri til umferðaóhappa

„Vanmat ökumanna á ástandi dekkja getur verið stórvarasamt. Við sjáum því miður alltof oft að viðskiptavinir koma með dekk á haustin til þess að skipta fyrir veturinn og þá kemur í ljós að mynstur dekkjanna er komið undir slitmörk til þess að flokkast sem gagnleg vetrardekk. Nokian-dekkin eru með svokallaðar DSI-merkingar á öllum sínum dekkjum sem segja til um hversu mikið er eftir af dekkinu til þess að uppfylla öryggi þess. Eins ráðleggjum við viðskiptavinum að fylgjast með loftþrýstingi í dekkjunum reglulega því það eykur öryggi og endingu. Einnig er gott að víxla dekkjunum á milli fram og aftur til þess að jafna slit dekkjanna,“ segir Sigurjón Árni Ólafsson, framkvæmdarstjóri MAX1.

Hliðar á Nokian-dekkjum eru sérstyrktar með aramíð gúmiblöndu. Gúmíblandan sem notuð er til að styrkja hliðarnar er úr aramíð sem er flokkur hitaþolinna og sterkra gervitrefja. Þetta efni er, m.a. notað í flugvélar, báta og skotheld vesti.

Þú getur treyst Nokian gæðadekkjunum

„Nokian-dekk hafa ávallt komið gífurlega vel út í könnunum og eiga sigurvegara í öllum flokkum. Lögð er áhersla á að valin séu gæðadekk undir bílinn því dekk eru mikilvægt öryggistæki. Það er mikilvægt að geta treyst eiginleikum dekkja í krefjandi aðstæðum. Nokian-dekk eru prófuð á 700 hektara fullkomnu prófunarsvæði Nokian í Finnlandi. Á svæðinu eru um 50 mismunandi brautir þar sem þeir prófa og sannreyna Nokian-dekk á mismunandi undirlagi í afar erfiðum og krefjandi vetraraðstæðum. Framleiðandi Nokian er leiðandi í visthæfni og notkun vistvænna efna við framleiðslu Nokian gæðadekkja,“ segir Sigurjón.

Hvað er rétta vetrardekkið?

Hjá Nokian getur þú valið um negld dekk, harðkorna vetrardekk sem og vetrardekk sem henta allt árið. Þegar kemur að vali á réttum dekkjum er gott að velta því fyrir sér hvernig dekk henta hverjum og einum. Þegar kemur að vetraröryggi kemur ekkert í stað nagladekkja, næst þar á eftir koma harðkornadekk síðan almenn vetrardekk og síðast í röðinni eru vetrardekk sem henta vel sem heilsársdekk. Best er að leita ráða hjá ráðgjöfum Nokian hjá MAX1 Bílavaktinni.

Nokian Hakkapeliitta 9 SUV er framúrskarandi vetrar- og nagladekk með aramíð hliðarstyrkingu. Dekk sem aðlagar sig að öllum vetraraðstæðum norðlægra slóða.

Aramíð hliðarstyrking bjargar mannslífum

Nokian Tyres Aramid hliðarstyrking er ný tækni sem eykur endingu dekkja og verndar þau í óvæntum aðstæðum. Efnasamband hliðanna er einstaklega endingargott og inniheldur gríðarsterkar aramíðtrefjar, sem eru sambærilegar efninu kevlar sem er notað í skotheld vesti. Aramíðtrefjarnar styrkja hliðarveggi dekksins þannig að það þolir betur utanaðkomandi álag eins og holur í vegum. Nokian Aramid hliðarstyrking er í eftirfarandi dekkjum frá Nokian: Nokian WR SUV 4 , Nokian WR SUV 3, Nokian WR C3, Nokian Hakkapeliitta R3 SUV, Nokian Hakkapeliitta LT2Nokian Rotiiva AT, Nokian Rotiiva AT Plus, Nokian Hakkapeliitta 8 suv og Nokian Hakkapeliitta 9 suv.

Nokian Hakkapeliitta R3 er harðkorna vetrardekk þar sem öryggi og þægindi blandast fullkomlega saman. Dekkið er byggt upp af Arctic Sense Grip hugmyndafræðinni þar sem áhersla er lögð á stöðugleika, nákvæmni og áhyggjulausan akstur í vetrarfærð.

Nokian tryggir dekk með aramíð hliðarstyrkingu

Reynsla Nokian af aramíð hliðarstyrkingunni er gríðarlega góð og svo góð að Nokian ábyrgist öll dekk með aramíð hliðarstyrkingu. Dekk er bætt að fullu ef það hoggið á eðlilegan hátt og slittalan 4 er sýnileg á dekki og dekkið er ekki eldra en 24 mánaða frá kaupdegi. Nánari upplýsingar fást hjá söluráðgjöfum MAX1.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum