Kínahofið er til húsa að Nýbýlavegi 20 og hefur verið starfandi í 35 ár. Eigendaskipti urðu á þessum gróna stað fyrir sjö árum og núverandi eigandi heitir Karen Lien Nguyen. Fyrir tæpum tveimur árum voru allar innréttingar og eldhús staðarins endurnýjað og er hann ákaflega hlýlegur, fallegur og frísklegur í dag.
Kínverskur matur er vinsæll meðal Vesturlandabúa og eru Íslendingar þar engin undantekning. Það sem gerir Kínahofið svo rómaðan og vinsælan stað er að þar er ávallt eldað úr fersku hráefni sem berst daglega á staðinn. Hér fær fólk kínverskan mat eins og hann gerist ferskastur og bestur. Þá spillir ekki fyrir að maturinn er léttur í maga og fer vel í fólk.
Kínahofið tekur um 80 manns í sæti. Hádegishlaðborðið, sem er í boði alla virka daga frá 11 til 14, er mjög vinsælt, ekki síst meðal fólks sem vinnur í nágrenninu. Hádegishlaðborðið kostar 2.100 kr. en hægt er að velja um mjög marga gómsæta rétti.
Á kvöldin eru borðin dúkuð, fólk velur sér rétti af matseðli, gefur sér yfirleitt miklu lengri tíma til að njóta matarins í þessu fallega og þægilega umhverfi.
Viðskiptavinahópur Kínahofsins er mjög fjölbreyttur, Íslendingar eru í meirihluta en erlendir ferðamenn sækja staðinn líka talsvert, bæði einstaklingar og hópar.
Kínahofið er opið virka daga frá 11 til 22 og um helgar frá 16 til 22. Um helgar er vinsælt að taka matinn með heim en ávallt eru þó fleiri sem kjósa að snæða á staðnum. Um helgar er æskilegt að panta borð fyrirfram og er það gert í síma 554-5022.
Sjá nánar á vefsíðunni kinahofid.is og á Facebook-síðunni Kínahofið.