fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Nýju Nokia-símarnir slá í gegn: Ódýrir, níðsterkir og með hraðari uppfærslum

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 6. september 2018 08:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýju Nokia símarnir hafa slegið í gegn og hafa um 15.000 Nokia-símar verið seldir á Íslandi á einu ári.

Nokia-símarnir eru hágæða tæki, afar sterkir og vel smíðaðir. En þeir eru jafnframt í flestum tilvikum mun ódýrari en aðrir tæknilega sambærilegir símar. Gott dæmi er Nokia 6.1 sem kostar undir 40.000 krónum en tekur samt upp myndskeið í 4K upplausn.

Nokia 7 Plus vann síðan á dögunum til EISA verðlaunanna sem eru meðal þeirra allra virtustu sem raftæki í Evrópu geta unnið til. EISA eru samtök 25 tæknitímarita í Evrópu og því um mjög faglegt val að ræða. Nokia 7 Plus er sérstaklega vel búinn sími, sterkur og mjög fallegur í útliti og gefur ekkert eftir í tæknilegum íburði: Stór skjár, mjög stóra rafhlaða og afar öflugar myndavélar með Carl Zeiss linsum. Samt kostar hann undir 60 þúsund krónum. Tæknilegir eiginleikar hans, hönnun og hagstætt verð eru líklega helstu ástæður þess að EISA valdi hann sem bestu vöruna í flokknum Consumer Smartphone.

Nýjasta viðbótin frá Nokia er Nokia 3.1. Sími sem kostar vel undir 30.000 krónum en er þó mjög vel útbúinn. Hann er með 13MP myndavél, 8 kjarna örgjörva og skjá sem er í hinum nýtísku 18:9 hlutföllum, en hann er meðal örfárra síma á þessu verði sem bjóða upp á slíkt.

Síðan má ekki gleyma takkasímunum góðu Nokia 3310 og Nokia 8110 4g en þeir eru ennþá mjög vinsælir.

Hraðari kerfisuppfærslur

Algengt er að snjallsímaframleiðendur setji svokallað „skin“ yfir stýrikerfið í símunum til að fá „sitt“ útlit á þá auk þess sem þeir setja mikið af öppum í símana í framleiðsluferli þeirra, öpp sem oft er ekki hægt að eyða úr tækjunum. Þetta bæði hægir á tækjunum og seinkar eða jafnvel kemur í veg fyrir kerfisuppfærslur. Það sem greinir Nokia að mestu frá öðrum Android snjallsímum er að allir Nokia símarnir nota Android eins og það kemur frá Google, ekki með neinu skinni eða óþarfa öppum. Þetta bæði tryggir og flýtir gríðarlega mikið fyrir kerfisuppfærslum sem eru mjög mikilvægar fyrir virkni símans. Þannig eru allir Nokia símar sem seldir voru fyrir ári síðan með nýjustu útgáfu af stýrikerfinu í dag.

Öryggisuppfærslur skipta miklu máli fyrir gagnaöryggi og vernda viðkvæmar upplýsingar. Því er mikilvægt að Nokia býður upp á mánaðarlegar öryggisuppfærslur í símunum.

Nokia símarnir eru seldir í verslunum Símans, Vodafone, Tölvuvek, Nova, Elko og hjá flestum endursöluaðilum farsíma á landsbyggðinni. Sjá nánar á vefsíðunni wkonnekt.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum