fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Vocalist: Söngnám fyrir alla

Kynning
Kynningardeild DV
Föstudaginn 24. ágúst 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Í söngskólanum Vocalist ættu allir að finna söngnám við sitt hæfi. Námskeiðin eru sniðin að þörfum hvers og eins og henta bæði fyrir áhuga- og atvinnusöngvara. Við kennum alla raddstíla, svo sem jazz, klassík, popp, rokk, þungarokk og söngleikjastíl og hentar CVT-tæknin í alla þessa stíla,“ segir Sólveig Unnur Ragnarsdóttir sem stofnaði söngskólann Vocalist við Laugaveg haustið 2014 en skólinn hefur nú flutt aðsetur sitt að Síðumúla 8. Skólinn býður upp á þá nýjung þessa önnina að upptaka í hljóðveri á einu lagi með tilbúnum undirleik undir leiðsögn kennara fylgir öllum tólf vikna námskeiðum, bæði fyrir fullorðna og unga nemendur.

Hvað er CVT?

„Við kennum eftir frábærri tækni sem kallast Complete Vocal Technique eða CVT sem er geysivinsæl um alla Evrópu bæði meðal atvinnusöngvara og leikmanna, enda gefur tæknin góðan og fljótvirkan árangur,“ segir Sólveig. CVT byggir á rannsóknum Cathrine Sadolin á því hvernig hljóðfærið okkar, röddin, virkar þegar við myndum hin ýmsu hljóð og að við getum lært að framkalla þau öll á heilbrigðan hátt. Hugmyndafræðin er meðal annars sú að það á ekki að vera erfitt að syngja og allir geti lært það. Tæknin er þekkt fyrir að vinna bug á hæsi, raddþreytu og öðrum raddtengdum vandamálum. Vocalist býður upp á ýmis söngnámskeið fyrir nær alla aldurshópa og er CVT-tæknin notuð, enda fjölbreytilegt og nothæft tæki fyrir alla söngvara, unga sem aldna, reynda sem óreynda.

Námskeiðin hjá Vocalist

Vocalist býður upp á tólf vikna grunnnámskeið í CVT fyrir fólk á aldrinum 16 ára og upp úr, fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeiðið er í senn tíu hóptímar og tveir einkatímar og í lokin fær hver og einn þátttakandi að taka upp eitt lag í hljóðveri. „Við bjóðum upp á tólf vikna námskeið fyrir unga fólkið og eru tveir hópar, 12–16 ára og 8–12 ára,“ segir Sólveig. Kennt er í 4–6 manna hópum einu sinni í viku og þar læra börnin að kynnast eigin rödd betur auk þess að fá þjálfun í túlkun, tjáningu og framkomu. „Þau læra að syngja í míkrófón og kynnast mismunandi tónlistarstílum,“ segir Sólveig. Lokatónleikar eru síðan haldnir eftir hverja önn þar sem þátttakendur af öllum námskeiðunum fá tækifæri til að láta ljós sitt skína.

Kvennakór Vocalist

Kvennakór Vocalist hóf starfsemi sína í október 2015 og æfir saman á þriðjudagskvöldum kl. 19–21 í safnaðarheimili Áskirkju og verða áheyrnarprufur haldnar þann 4. september. „Við syngjum létt og skemmtileg lög, popp og dægurlög,“ segir Sólveig. Kórinn er opinn öllum konum á aldrinum 20–65 ára; þeim sem eru í söngnámi hjá Vocalist og einnig er hægt að vera bara með í kórnum.

Einkatímar

„Að auki bjóðum við upp á einkatíma sem sniðnir eru að þörfum hvers og eins því það er svo einstaklingsbundið hvar raddvandamálin liggja,“ segir Sólveig. Hver tími er 45 mínútur og hægt er að kaupa bæði staka tíma og söngkort. Allir fá sitt tækifæri til að skína.

Kennsla hefst þann 17. september og er skráning í fullum gangi.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu skólans, vocalist.is.

Hægt er að hafa samband í síma 694-3964 eða með því að senda tölvupóst á netfangið vocalist@vocalist.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum