fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Verslunin Móðurást á sér merka forsögu: Hugsjón og frumkvöðlastarfsemi

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Föstudaginn 17. ágúst 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunin Móðurást á sér merkilega forsögu en eigandinn, Guðrún Jónasdóttir, hóf árið 1992 að kaupa brjóstadælur og leigja þær út. „Ég eignaðist fyrirbura 1987 og upp úr því stofnuðum við nokkur stuðningshóp fyrir fyrirburaforeldra og þá áttaði ég mig á því að þetta vantaði. Ég fór því að kaupa  mjaltavélar dýrum dómum og leigja þær út,“ segir Guðrún.

Hér var því um sannkallaða frumkvöðlastarfsemi að ræða sem rekin var af hugsjón. „Svona var enginn að gera á Íslandi og ég gerði mér fljótt grein fyrir því að það vantaði mikið upp á þjónustuna við mæður nýfæddra barna.“

Starfsemin tók smám saman að vaxa og breikka og Guðrún fór að selja ýmsan skyldan varning. Fyrst var hún bara með þetta heima hjá sér en árið 2002 stofnaði hún verslunina Móðurást sem í dag er bæði verslun á Laugavegi 178 og vefverslun.

„Ég leigi áfram mjaltavélar og einnig leigi ég út ungbarnavogir sem koma sér vel til dæmis hvað varðar fyrirbura því þeir eru útskrifaðir fyrr en áður var. Ég veiti líka brjóstagjafarráðgjöf fyrir konur sem þurfa á slíku að halda en ég er menntaður brjóstagjafarráðgjafi,“ segir Guðrún.

„Sérhæfing mín felst í þessu ásamt því að ég sel allt sem snertir brjóstagjöf, allt sem gæti þurft við mismunandi aðstæður við brjóstagjöf,“ segir Guðrún en auk þess eru seldar ýmsar barnavörur í Móðurást, föt, ungbarnaleikföng og Silver Cross barnavagnar og kerrur, svo eitthvað sé nefnt.

Guðrún segir að starfið sér mjög gefandi og hún sé lánsöm að fá að starfa við áhugamál sitt og hugsjón, ekki séu allir svo heppnir.

Sem fyrr segir er verslunin staðsett á Laugavegi 178, við hliðina á gamla útvarpshúsinu. Vefverslunin er á slóðinni modurast.is. Sumar vörur eru eingöngu til sölu í vefversluninni en það er engu að síður hægt að sækja þær í verslunina. Margir viðskiptavinir skoða vörurnar vandlega á vefnum en koma síðan í verslunina til að skoða betur og fá ráðgjöf.

Verslunin á Laugaveginum er opin mánudaga–föstudaga frá kl. 11 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Símanúmer er 564 1451 og netfang modurast@modurast.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum