fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Helga býður upp á heimagerðan mat og grillmat á tveimur stöðum á Snæfellsnesi

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 7. júlí 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Helga Magnea Birkisdóttir og Ólafur Sólmundsson reka tvo staði á Snæfellsnesi, Prímus kaffihús á Hellnum og Stapann veitingastað á Arnarstapa.

Hjónin tóku u-beygju í lífinu árið 2014 þegar þau fluttu úr Keflavík vestur á Snæfellsnes. Þar una þau sér vel, umvafin fallegri náttúru og góðum nágrönnum. Nóg er að gera á báðum stöðum og gestirnir eru bæði erlendir og innlendir, ferðamenn, heimamenn og sumarhúsaeigendur.

„Við lentum bara hérna,“ segir Helga og hlær. Hjónin bjuggu í Sandgerði og Keflavík og voru ekkert í veitingabransanum þar. „Ég var búin að hugsa um að opna kaffihús, en var kannski of hrædd til að stíga skrefið. Kaffihús hafa ekki gengið of vel í Keflavík.“

Helga og Ólafur tóku svo af skarið saman, seldu húsið í Keflavík, fluttu að Hellnum og stofnuðu fyrirtækið Birkisól, sem nefnt er eftir feðrum þeirra og í framhaldinu kaffihúsið Prímuskaffi. Fyrir ári síðan opnuðu þau síðan veitingastaðinn Stapann á Arnarstapa.

„Það var kominn tími til að gera eitthvað,“ segir Helga, sem segist hafa verið komin í góðan þægindaramma.

Heimagert af Helgu sjálfri

„Á Prímuskaffi leggjum við áherslu á heimatilbúinn mat,“ segir Helga. Leggjum metnað í að hafa sem mest heimagert. Bollurnar eru uppskrift úr hausnum á mér, þær eru með brúnni sósu, kartöflum og hrásalati og auðvita sultu. Þær eru alveg að slá í gegn,“ segir Helga. Súpurnar eru þrenns konar: sveppa-, fiski- og kjötsúpa og sama á við þær, allt heimagert.

Kaffihúsið er frekar stórt og þar voru áður fjárhús. Prímus er vinsælt meðal ferðamanna og fullt af gestum sem koma þangað með rútum og er til dæmis fullt að gera í hádeginu. Prímus kaffi getur tekið á móti allt að 160 manns og eru þrír salir á staðnum. Það er opið kl. 11-20 og matseðillinn er í boði allan daginn.

„Við viljum bjóða upp á heimilislegt og afslappað andrúmsloft og ég er með frábært starfsfólk,“ segir Helga. „Starfsfólkið mitt er metnaðarfullt, hrikalega dugleg og leggur sig fram við að læra íslensku.“

HM stendur nú yfir og eru allir leikir sýndir á Prímuskaffi í sérsal. „Við sýnum alla leikina á 75 tommu sjónvarpi og það var frábær stemning, mikið gaman og  fullur salur þegar Ísland keppti. Við höldum áfram að sýna leikina á HM en áhorfið hefur aðeins minnkað. Útlendingarnir komu uppáklæddir í HÚH bol og það var gaman hvað þeir voru mikið að hvetja Ísland.“

Stapinn – Grillstaður og eitthvað í boði fyrir alla

Þó að aðeins sé fimm mínútna keyrsla á milli staðanna og sömu eigendur, eru þeir ólíkir í stíl og úrvali. Stapinn er grillstaður og þar er hægt að fá eitthvað af öllu.

„Hér reynum við að koma til móts við þarfir allra, bjóðum upp á mat af grillinu, bæði hamborgara, veganborgara, kjúklingaborgara, lambasnitsel og fish’n chips. Við notum besta hráefni þorskhnakka í fish’n chips og koma þeir úr héraði og við leggjum mikla áherslu á gæðin. Við erum líka með salsa, heita osta, sælgæti og ís. Hér getur þú líka sest inn og fengið þér drykk. Stapinn er pínu orðinn bar á kvöldin, fólk kemur hér við og fær sér smá að sötra til að ylja kroppinn. Það er góð stemming hér og margir sumarhúsaeigendur labba til okkar, fá sér einn drykk, einn ís og svo framvegis.“

Stapinn fagnaði 1. árs afmæli þann 12. júní síðastliðinn. „Við héldum partí 2 dögum áður, vorum að jafna okkur daginn eftir og opnuðum svo,“ segir Helga og hlær. „Þetta var á fallegum sumardegi í fyrra, það var blankalogn og brjálæðislega gott veður. Í sumar hefur bara rignt, en „it s all about the outfit“,“ segir Helga.

Stapann einkennir stór og mikill pallur sem snýr að Arnarstapavegi. „Við erum með útihúsgögn og útiarinn, en ekki hefur gefist tími til að njóta mikið í sumar Ég legg mikla áherslu á að spila íslenska tónlist á Stapanum og langar að bjóða til útitónleika á pallinum síðar. Við erum enn að gera Stapann upp, vorum að setja gler allan hringinn og eigum eftir að fínisera aðeins á bakvið.“

Gönguleiðin milli Arnarstapa og Hellna er talin þriðja fallegasta gönguleið í heimi, það tekur um 50 mínútur að labba hana og svo þarf að labba til baka að bílnum. Það er því tilvalið að njóta fallegrar gönguleiðar og náttúru og kíkja við á Prímus og/eða Stapanum um leið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum